Hún fæddist í 22. apríl 1986 í Austin í Texas. Hún ólst upp á íhaldssömu kaþólsku heimili með foreldrum sínum og yngri systur, Whitney, við kröpp kjör.
Á sínum yngri árum tók hún þátt í fjölda fegurðarsamkeppna. Hún hætti í skóla 17 ára til að elta fyrirsætudraum sinn í New York. Síðar lá leið hennar til Hollywood þar sem hún eltist við draum sinn um að verða leikkona.
Smátt og smátt fór erfiði hennar að bera árangur og 2004 fékk hún hlutverk í tveimur tónlistarmyndböndum og lítil hlutverk í sjónvarpsþáttum á borð við „The OC“. Á næstu árum fékk hún stöðugt fleiri hlutverk og 2008 fékk hún aðalhlutverkið í „All the boys love Mandy Lane“. En hún sló fyrst í gegn þegar hún lék á móti Seth Rogen og James Franco í „Pineapple Express,“ 2008.
2008 kom hún út úr skápnum sem tvíkynhneigð og hóf samband við ljósmyndarann Tasya van Ree. Það kann að virðast stórt stökk fyrir konu, sem ólst upp í íhaldssamri kaþólskri fjölskyldu, að koma út úr skápnum sem tvíkynhneigð en það var þó kannski ekki eins stórt stökk og ætla má. Amber sneri nefnilega baki við guði þegar hún var 16 ára og gerðist trúleysingi. Það gerðist í kjölfar þess að besti vinur hennar lést í bílslysi.
Amber og Tasya voru saman frá 2008 til 2012. Á þeim tíma máttu samkynhneigðir ekki ganga í hjónaband en Amber tók eftirnafn Tasya upp en skipti aftur yfir í Heard þegar þær slitu sambandi sínu.
Sambandið við Tasya hafði áhrif á feril Amber því leikstjórar efuðust um að hún gæti leikið gagnkynhneigða konu í rómantískum kvikmyndum. Hún sýndi fram á að þeir höfðu rangt fyrir sér.
Samband Amber og Tasya var að sögn stormasamt og hefur það verið dregið inn í yfirstandandi málaferli. Amber var handtekin 2009 í kjölfar deilna hennar við Tasya en var ekki kærð fyrir ofbeldi.
Fyrir nokkrum árum sagði Tasya að Amber væri misskilin. Þær eru mjög góðir vinir enn þann dag í dag.
2011 fékk hún hlutverk í kvikmynd byggðri á bókinni „The Rum Diary“ og það var þá sem hún hitti Johnny Depp. Ári síðar opinberuðu þau samband sitt. Þau trúlofuðu sig 2014 og gengu í hjónaband 2015. Fimm mánuðum síðar sótti hún um skilnað. Þá gengu ásakanir þeirra á milli um ofbeldi. Amber sótti um nálgunarbann gegn Johnny Depp og fékk.
Í grein í Washington Post 2018 sagði Amber að hún hefði verið beitt ofbeldi í sambandi en nefndi Johnny Depp ekki á nafn. Í kjölfarið kölluðu breskir fjölmiðlar hann mann sem lemdi eiginkonu sína. Hann segist hafa misst vel launuð hlutverk vegna greinar Amber. Þar er ástæðan fyrir núverandi málarekstri komin. Hann krefur Amber um 50 milljónir dollara og hún krefur hann um 100 milljónir dollara.
Í júní á síðasta ári kom Amber fólki á óvart þegar hún tilkynnti að hún hefði eignast dótturina Oonagh Paige Heard. Staðgöngumóðir gekk með hana og Amber hefur ekki upplýst hver faðirinn er.
Kjaftasögur hafa sprottið upp úr þessu og hefur því meðal annars verið velt upp hvort Elon Musk sé faðir Oonagh en hann og Amber voru par á árunum 2016 og 2017. Fjórum mánuðum eftir að slitnaði upp úr sambandi þeirra tóku þau saman á nýjan leik en slitu sambandinu endanlega í febrúar 2018.