Konan, sem vill ekki koma fram undir nafni, skýrði frá þessu á samfélagsmiðlinum Reddit.
Þar segist hún hafa alist upp á mjög kristnu heimili. Hún flutti að heiman þegar hún komst á fullorðinsár. Eitt sinn þegar hún kom í heimsókn til foreldra sinna var henni boðið í samkvæmi. Hún vissi að meðal gestanna yrði maður sem henni leist vel á.
Hún vildi því líta sérstaklega vel út þetta kvöld í þeirri von að fá hann til að stunda næturskemmtun með henni. Hún segir að þvert á það sem foreldrar hennar töldu þá hafi hún verið byrjuð að stunda kynlíf á þessum tíma, eitthvað sem samræmist trúarskoðunum þeirra illa.
Áður en hún fór í samkvæmið ákvað hún að fara í bað og raka sig. Þar sem hún hafði gleymt rakvélinni sinni heima hjá sér ákvað hún að nota rakvél föður síns. Það reyndist vera frekar slæm ákvörðun.
„Ég tók rakvél föður míns. Ég var með útbrot og það blæddi aðeins því ég skar mig. Ég fór í samkvæmið, við vorum ekki saman og ekkert villt gerðist,“ sagði hún.
Nokkrum mánuðum síðar hringdi móðir hennar grátandi í hana og sagði að hún væri flutt frá föður hennar því hann hefði haldið framhjá henni.
Konan hringdi strax í föður sinn á Skype og sá strax, sér til hryllings, útbrotin á öllu andliti hans. Þá áttaði hún sig á að hann hafði smitast af herpes af rakvélinni sinni sem hún hafði notað þegar hún var hjá þeim fyrrgreint skipti.
Hún varð því að játa hvað hún hafði gert og tókst að sannfæra móður sína um að ekki hefði verið um framhjáhald að ræða.
„Ég svaf ekki hjá pabba mínum! Ég smitaði hann af herpes með því nota rakvélina hans,“ sagði hún að lokum.