Young, sem stundar viðskipti með fornmuni, fer reglulega í notað og nýtt verslanir til að leita að „fjársjóðum“. Í samtali við San Antonio Express-News sagði hún að þetta hafi virst vera rómversk stytta og að um góð kaup væri að ræða. „Í sólskini líktist hún því að hér gæti verið um eitthvað mjög, mjög sérstakt að ræða,“ sagði hún.
Sky News segir að í ljós hafi komið að styttan hafi verið flutt til Bandaríkjanna frá Þýskalandi í þeirri ringulreið sem ríkti þegar síðari heimsstyrjöldin geisaði.
Enn frekari rannsóknir leiddu í ljós að styttan er frá tímum Rómarveldis eða frá því einni öld fyrir Krist til einni öld eftir Krist og að hún hefði horfið frá Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni.
Styttan var fyrst sýnd opinberlega 1833 þegar hún var skráð í listaverkasafn Ludwig 1 konungs í Bæjarlandi. Hún var til sýnis í Aschaffenburg. Bandamenn vörpuðu sprengjum á bæinn í janúar 1944 og skemmdist safnið mikið.
Á einhvern hátt hvarf styttan og endaði í Texas. Líklegt má telja að bandarískur hermaður hafi haft hana með sér heim.
Með aðstoð lögmanns í New York, sem sérhæfir sig í alþjóðlegum lögum varðandi listaverk, gerði Young þýskum yfirvöldum viðvart um styttuna og ráðstafanir voru gerðar til að koma henni í hendur yfirvalda í Bæjaralandi. Hún verður þó til láns á San Antonio Museum of Art í Texas þar til í maí á næsta ári.