fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
Pressan

Læknir segir að við séum á barmi heimsfaraldurs

Ritstjórn Pressunnar
Mánudaginn 24. febrúar 2020 12:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölgun tilfella kórónaveirunnar Covid-19 utan Kína veldur sérfræðingum talsverðum áhyggjum og hefur breska Independent eftir Paul Hunter, prófessor í læknisfræði við University of East Anglia, að við séum á barmi heimsfaraldurs.

Fimm dauðsföll af völdum veirunnar hafa verið staðfest á Ítalíu en þar hafa yfir 200 manns greinst. Fjögur ný tilfelli hafa verið staðfest í Bretlandi og þá hafa yfirvöld í Íran miklar áhyggjur af útbreiðslu veirunnar þar. Fullyrt hefur verið að 50 manns hafi látist af völdum veirunnar í borginni Qom. Írönsk yfirvöld segja að sú tala sé röng, 12 hafi látist og 66 smitast. Í morgun voru fyrstu tilfelli veirunnar staðfest í Írak, Kúveit og Barein.

Góðar fréttir bárust þó frá kínversku stórborgunum Peking og Sjanghæ í morgun en engin ný tilfelli veirunnar greindust í gær.

Hunter segir við Independent að þessi útbreiðsla geri það að verkum að líkurnar á heimsfaraldri séu mun meiri en þær voru fyrir helgi. Veiran dreifi sér nú hraðar en við ráðum við. Þó að nýjum tilfellum væri að fækka í Kína, þar sem útbreiðslan byrjaði, valdi tölur helgarinnar ákveðnum áhyggjum – þá sérstaklega á Ítalíu. Hann á von á því að útbreiðslan þar eigi eftir að aukast talsvert á næstu dögum.

Þá segir hann í samtali við breska blaðið Guardian að fjöldi tilfella í Íran valdi áhyggjum í Mið-Austurlöndum. Beinast áhyggjurnar af innviðum ríkja á þessu svæði og getu þeirra til að ráða við veiruna og útbreiðslu hennar. Yfirvöld í Pakistan brugðust skjótt við um helgina og lokuðu landamærunum að Íran. Þá hafa yfirvöld í Jórdaníu bannað ferðamönnum frá Kína, Íran og Suður-Kóreu að koma til landsins.

Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, segir við BBC að glugginn til að ná tökum á veirunni sé að lokast.

Robin Thompson, farsóttafræðingur við Oxford-háskóla, segir að tvöföldun hafi orðið í tilfellum á Ítalíu frá föstudegi til sunnudags. Mjög mikilvægt sé að fara að ráðum sérfræðinga til að hefta frekari útbreiðslu og setja sjúklinga strax í sóttkví þegar upp kemur grunur um smit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Hversu oft þarf að þvo handklæði til að halda þeim hreinum og mjúkum?

Hversu oft þarf að þvo handklæði til að halda þeim hreinum og mjúkum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

82 ára með þol á við tvítugan mann – Vísindamenn gáttaðir og telja hann kollvarpa hugmyndum um öldrun

82 ára með þol á við tvítugan mann – Vísindamenn gáttaðir og telja hann kollvarpa hugmyndum um öldrun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Örvæntingarfullt ákall til mannræningjans – Vilja sönnun að móðir þeirra sé á lífi

Örvæntingarfullt ákall til mannræningjans – Vilja sönnun að móðir þeirra sé á lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svarti sauður norsku konungsfjölskyldunnar brast í grát í dómsal – „Ég er þekktur fyrir að vera sonur móður minnar, ekki fyrir nokkuð annað“

Svarti sauður norsku konungsfjölskyldunnar brast í grát í dómsal – „Ég er þekktur fyrir að vera sonur móður minnar, ekki fyrir nokkuð annað“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Martröð móður þegar þriggja ára sonur hennar sagði henni frá því hvað gerðist á barnaheimilinu

Martröð móður þegar þriggja ára sonur hennar sagði henni frá því hvað gerðist á barnaheimilinu