Í sjónvarpsávarpi til argentísku þjóðarnar, sagði forseti landsins Mauricio Macri að hann áætlaði að leggja niður helming af öllum ráðuneytum landsins. Hann sagði meðal annars að landið gæti ekki eytt meiri verðmætum en það skapaði. Ásamt þessum aðhaldsaðgerðum mun skattur á sumum útflutningsvörum hækka um helming, meðal annars á korni og sojaafurðum.
Gífurlegur skortur er á gjaldeyri í Argentínu og hefur því forsetinn gripið til þessara aðgerða. Hann tilkynnti hinsvegar ekki hvenær breytingarnar myndu taka gildi. Fjármálaráðherran, Nicolas Dujovne, hefur einnig tilkynnt að skera yrði niður halla ríkissjóðs fljótt og örugglega til að stöðva fall gjaldmiðil landsins.
Gjaldmiðill þjóðarinnar hefur fallið um rúmlega helming gagnvart dollarnum það sem liðið er af árinu, þrátt fyrir að stýrivextir í landinu séu 60%. Forsetinn mun fara í vikunni til Washington til að funda með forsvarsmönnum Alþjóða Gjaldeyrisjóðsins, en Argentína fékk lánaðar 5000 milljarða krónur hjá sjóðnum í júní síðastliðnum. Þrátt fyrir erfitt ástand í efnahag Argentínu spáir Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn að efnhagsástandið þar í landi muni lagast árið 2019 og vaxa á árunum eftir.