fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025

Lífið er enginn leikur

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 23. febrúar 2020 13:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynn Hartman fæddist í apríl 1958 og hét í raun Vicki Jo. Hún var dóttir Donalds Genes Omdahl, verkfræðings og eiganda smávöruverslunar í Thief River Falls í Minnesota. Móðir Brynn var Constance Faye og Brynn átti þrjú systkin; bróður og tvær systur. Þetta fólk kemur ekki frekar við sögu hér.

Brynn ólst upp í fjölskyldu sem lét lítið að sér kveða og var Brynn miðlungsnemandi, en hún átti sína drauma eins og gengur og gerist. Því ákvað hún að hætta í skóla og þann 20. maí, 1977, giftist hún talsímaverði, Douglas Torfin, sem einnig bjó í Thief River Falls.

Blint stefnumót og upprennandi leikari

Brynn vildi þó fá meira út úr lífinu og skildi við Douglas og sá sér að einhverju leyti farborða með fyrirsætustörfum í Minneapolis. Frægð og frami létu lítt á sér kræla og því flutti Brynn til Hollywood þar sem hún leitaði hófanna í kvikmyndaleik. Þangað komin kastaði hún nafni sínu, Vicki Jo, fyrir róða og tók upp nafnið Brindon sem síðar vék fyrir Brynn.

Brynn Hartman
Átti drauma sem aldrei rættust.

Það var síðan árið 1986 sem Brynn hitti upprennandi leikara að nafni Philip Edward Hartman á blindu stefnumóti. Sjálf var Brynn þegar þarna var komið sögu enn að baksa í fyrirsætustörfum, en Phil var sjálfsöryggið uppmálað enda á hraðferð upp metorðastigann í Hollywood sem skemmtikraftur og leikari.

Gamlir draumar láta á sér kræla

Brynn og Phil gengu í hjónaband árið 1987, hann í þriðja skipti en hún sitt annað. Hjónakornin komu sér fyrir í lítilli íbúð á Manhattan, tíminn leið og þau eignuðust tvö börn, son árið 1989 og dóttur árið 1992.

Tilvera Brynn snerist að mestu um uppeldi barnanna en innra með henni blossuðu upp gamlir draumar um frama á sviði leiklistar og allt sem honum fylgdi.

Fjölskyldan
Börnin voru heima þegar Brynn greip til byssunnar.

Brynn fór í leiklistartíma og lét „bæta“ útlit sitt með lýtaaðgerðum. Allt kom fyrir ekki og Brynn uppskar eingöngu örhlutverk og einstaka tækifæri til að bregða fyrir í sjónvarpsþáttum, og þá yfirleitt fyrir tilstilli eiginmanns síns.

Vaxandi öfundsýki

Phil treysti sess sinn í harðri samkeppni í Hollywood og að sama skapi jókst öfundsýki Brynn út í eiginmann sinn, enda mistókst henni endurtekið að gera sig gildandi í þeim geira.

Víkur nú sögunni til 28. maí, 1998, en þá reis stjarna Phils hærra en nokkru sinni fyrr, en stjarna Brynn var enn lágt á himni. Að nóttu þess dags, á milli klukkan tvö og þrjú, ók Brynn heim til vinar síns, Rons Douglas. Hún sagði Ron að hún hefði banað eiginmanni sínum, en Ron lagði ekki trúnað á orð hennar.

Allt í steik

Klukkan 6.30 óku þau heim til Brynn og rann þá upp fyrir Ron að Brynn hafði engu logið því hún hafði skotið Phil þremur skotum í höfuðið. Ron Douglas hringdi umsvifalaust í lögregluna sem byrjaði á því að koma börnum þeirra hjóna út af heimilinu og taka morðvopnið í sína vörslu.

Áður en lögreglan gat náð tali af Brynn fór hún inn í svefnherbergi þeirra hjóna, greip þar til annarrar skammbyssu og svipti sig lífi með einu skoti, beint í annað augað.

Hartman-hjónin
Velgengni Phils gerði Brynn öfundsjúka.

Eins og oft vill verða þegar fólk fer yfir móðuna miklu þá kom í ljós að ekki hafði verið allt sem sýndist í hjónabandi Phils og Brynn. Lögfræðingur Phils sagði í grein á CNN að Brynn hefði átt til að taka ógnarleg reiðiköst og í öðrum miðli að áfengisneysla Brynn hefði verið uppspretta margra rifrilda hjá þeim.

Kókaín og skilnaður

Til að bæta gráu ofan á svart þá var Brynn háð kókaíni og punkturinn yfir i-ið var yfirvofandi skilnaður hjónanna. Brynn og Phil voru óhamingjusöm og sökuðu hvort annað um að standa í vegi fyrir skilnaði.

Skemmtikraftur
Phil var á hátindi ferils síns þegar hann var myrtur.

Að sögn hafði Brynn, kvöldið áður en hún myrti Phil og svipti sig síðan lífi, innbyrt allt í senn, á veitingastað í Hollywood, kókaín, áfengi og Zoloft.

Reyndar hafði Brynn haldið sig fjarri öllum vímugjöfum í 10 ár, en því bindindi hafði lokið um fimm mánuðum fyrr þegar ónafngreindur skemmtikraftur bauð henni kókaín og kom henni aftur á bragðið.

Lífið er ekki leikur – það er dauðans alvara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Telur hann eiga skilið endurkomu í enska landsliðið – Lék síðast fyrir sjö sárum

Telur hann eiga skilið endurkomu í enska landsliðið – Lék síðast fyrir sjö sárum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild

Stórstjarna riftir samningi eftir skamma dvöl í sjöundu efstu deild
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kemur Arnar þjóðinni á óvart með þessu á næstu dögum? – „Arnar er þannig“

Kemur Arnar þjóðinni á óvart með þessu á næstu dögum? – „Arnar er þannig“
EyjanFastir pennar
Fyrir 20 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans

Óttar Guðmundsson skrifar: Búðarrölt lögreglustjórans
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Halda vandræði Liverpool áfram?

Langskotið og dauðafærið – Halda vandræði Liverpool áfram?