Fimm konur, sem voru misnotaðar af vændishringjum í Rotherham á barnsaldri, hafa stigið fram og ásakað lögreglumenn í bænum um að hafa einnig beitt þær kynferðisofbeldi. Ein þeirra segir lögreglumann hafa nauðgað sér í merktum lögreglubíl frá tólf ára aldri og hótað að skila henni aftur til vændishringsins ef hún hlýddi ekki. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun BBC sem birt var fyrr í dag.
Í umfjölluninni kemur fram að að hafa hlýtt á frásagnir þessara fimm kvenna hafi blaðamenn BBC einnig lesið vitnisburði 25 annarra kvenna sem lýsi því hvernig lögreglumenn í umdæminu hafi sjálfir beitt slíku ofbeldi eða unnið náið með níðingunum, annað hvort með því að aðstoða forsprakka vændishringjanna eða líta fram hjá starfsemi þeirra.
Rotherham-hneykslið sprakk út árið 2014 þegar sláandi skýrsla, sem unnin var undir handleiðslu prófessorsins Alexis Jay, var gerð opinber. Í henni kom fram að um 1.400 börn höfðu verið misnotuð kynferðislega á árabilinu 1997 til 2013, af götugengjum í Rotherham sem höfðu tælt börnin til sín, gefið þeim fíkniefni, nauðgað þeim margsinnis og gert sum þeirra út í vændi.
Skýrslan vakti heimsathygli og er enn milli tannanna á fólki í dag en hún þótti afhjúpa kerfisbresti í barnavernd á Bretlandseyjum og algjörum skorti á samhæfðum aðgerðum lögreglu og annarra yfirvalda til að stemma stigu við hinni ógeðfelldu starfsemi.
Svokallað Rotherham-mál nær aftur til áranna 1997–2013, þegar yfir 1.400 stúlkur voru beittar kerfisbundnu kynferðisofbeldi af glæpahringjum, aðallega skipuðum mönnum af pakistönskum uppruna. Málið vakti heimsathygli eftir Jay-skýrsluna árið 2014, sem afhjúpaði kerfisbresti í barnavernd og skorti á aðgerðum af hálfu lögreglu og annarra yfirvalda.
Í umfjöllun BBC kemur fram að hafin sé rannsókn innan lögreglunnar í South Yorkshire, sem Rotherham heyrir undir, á þessum meintu brotum lögreglumanna í gegnum árin. Háværar gagnrýnisraddir hafa þó heyrst og telja margir óásættanlegt að lögregluyfirvöld rannsaki sjálf sig með þessum hætti.
Áðurnefndur Alexis Jay, skýrsluhöfundurinn sem ýtti öllu af stað, hefur meðal annars stigið fram og segir það nauðsynlegt að óháðir eftirlitsaðilar stýri rannsókninni.
Enginn lögreglumaður hefur enn verið ákærður vegna málsins þrátt fyrir að þrír hafi verið handteknir frá desember 2024 vegna gruns um nauðganir, kynferðisbrot og spillingu.