fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

Lögregla varar fólk við þessu: „Það er þrennt sem veldur áhyggjum“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. mars 2026 12:22

Mynd/Lögreglan á Vestfjörðum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Vestfjörðum fékk ábendingu frá ábyrgum borgurum í vikunni sem vilja láta sér velferð barna varða.

„Þegar götur eru snjóhreinsaðar í þéttbýli þarf oft að moka snjónum í hrúgur og þær geymdar þar til hægt er að moka hrúgunum á vörubílspalla eða fjarlægja með öðrum hætti, sjá meðfylgjandi mynd af einni hrúgunni,“ segir í tilkynningu sem lögreglan birti á Facebook-síðu sinni.

Í tilkynningunni segir enn fremur að oft leiki börn sér í þessum snjóhrúgum en það getur þó reynst varasamt þó gleðilegt sé að börn velji að vera úti að leika sér. +

„Það er þrennt sem veldur áhyggjum í þessu sambandi. Það fyrsta er að oft leika börn sér að því að grafa holur í slíkar hrúgur og það getur verið hættulegt því snjór sem þessi er laus í sér og hann getur hrunið og skaðað börnin, t.d. ef þau eru komin inn í hrúgurnar.

Annað varðar börn sem gera sér að leik að renna sér niður hrúgurnar og jafnvel stoppa ekki fyrr en komið er út á nálæga götum en þessar hrúgur eru jafnan skammt frá götu eða gatnamótum.

Það þriðja er að þegar snjómokstursfólk er að moka í eða úr slíkum hrúgum er mjög hættulegt ef börn eru á sama tíma að leik í eða við hrúgurnar.“

Hvetur lögregla foreldra til að ræða þessar hættur við börn sín.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósáttur við að þurfa að borga kílómetragjaldið þótt bíllinn sé í útlöndum

Ósáttur við að þurfa að borga kílómetragjaldið þótt bíllinn sé í útlöndum
Fréttir
Í gær

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“
Fréttir
Í gær

Hafna því að kenna sjálfsvörn í grunnskólum – „Við erum hrædd við aukna tíðni ofbeldis“

Hafna því að kenna sjálfsvörn í grunnskólum – „Við erum hrædd við aukna tíðni ofbeldis“