fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

„Ég er á pari við Moggann þegar kemur að því að valda geðshræringu“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. mars 2026 09:30

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, lögmaður og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, tjáði sig á þriðjudag um að komið væri í ljós að utanríkisráðherra hefði staðið í viðræðum um inngöngu í ESB frá því ríkisstjórnin tók við á síðasta ári.

Hressileg umræða skapaðist við orð Brynjars, en 256 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færslu hans. Sá Brynjar því ekki annað í stöðunni en að skrifa meira um málið sem hann gerði í gær.

„Færsla mín í gær fór öfugt ofan í þá sem telja hagsmunum okkar best borgið með því með því að taka upp gamla Heimastjórnar fyrirkomulagið þannig að Kristrún eða Þorgerður verði hinn nýi Hannes Hafstein og Ursula Gertrud von der Leyen danski kóngurinn eða drottningin eftir atvikum.“

Segir Brynjar reiði sumra yfir orðum hans hafa orðið svo mikil að það hafi þurft að taka fram að hann væri ekki fyndinn og að auki lygalaupur.

„Um skort minn á kímnigáfu og skopskyni hefur aldrei verið ágreiningur og ég sjálfur viðurkennt að hafa unnið við að hagræða sannleikanum meira og minna alla starfsævina.“

Segist Brynjar aðeins hafa verið að benda á að það færi ekki á milli mála í hans huga, miðað við eigin orð utanríkisráðherra, að þótt formlegar aðildarviðræður væru ekki farnar af stað væru þær í raun löngu hafnar.

„Ég skil tilfinningar fólks en ég reiknaði ekki með að þessi skoðun mín myndi valda svona mikilli geðshræringu. Ég er á pari við Moggann þegar kemur að því að valda geðshræringu.“

Segir Brynjar það alveg hafa skort í umræðunni hverjir séu kostirnir við að ganga í ESB. Segist hann þó hafa heyrt í einhverjum fyrirsvarsmanni Evrópuhreyfingunnar, sem berst fyrir aðild að ESB, „að við værum að styrkja fullveldið með inngöngu í ESB. Þessi kenning hlýtur að koma frá einhverjum Birkenstock fræðimanninum sem fer sjaldan af skólalóðinni.“

Vísar Brynjar þar til Snærósar Sindradóttur, framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar, sem var einn þátttakenda í Torginu þætti RÚV á þriðjudag. Horfa má á þáttinn hér.

Brynjar hagræðir næst sannleikanum eins og hann sagði sjálfur og segist í talsverðu sambandi við Hannes Hafstein og Jón forseta á miðilsfundum.

„Þeir eru með böggum hildar yfir þessari ESB umræðu og spyrja mig gjarnan hvort sjálfstraustið og trúin á eigin þjóð hafi gufað upp. Ég spyr þá á móti hvort einhverjir kostir séu ekki við inngöngu. Þeir segjast ekki sjá það með góðu móti en það væri kannski helst fyrir þá sem hafi áhuga á kynlífsviðskiptum, enda slík viðskipti víðast hvar refsilaus í ESB ríkjum og ódýrari.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stefán Einar hjólar í Bubba og Sigmund Erni: „Auðvitað stekkur þú strax til. Ekki við öðru að búast“

Stefán Einar hjólar í Bubba og Sigmund Erni: „Auðvitað stekkur þú strax til. Ekki við öðru að búast“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Dagur segir rökin hrannast upp: „Þori að fullyrða að meginþorri nemenda og starfsfólks vilji ekki fara til baka“

Dagur segir rökin hrannast upp: „Þori að fullyrða að meginþorri nemenda og starfsfólks vilji ekki fara til baka“
Fréttir
Í gær

Lýsir slæmri meðferð á Sjúkrahúsinu á Akureyri – Öskraði af kvölum á meðan þrír menn héldu honum niðri

Lýsir slæmri meðferð á Sjúkrahúsinu á Akureyri – Öskraði af kvölum á meðan þrír menn héldu honum niðri
Fréttir
Í gær

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést
Fréttir
Í gær

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum
Fréttir
Í gær

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“