fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Daði fær „uppsagnarbréf“: „Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. mars 2026 08:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hafa birt Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra uppsagnarbréf.

Bréfið birtist á síðu 9 í Morgunblaðinu í dag en um er að ræða keypta heilsíðuauglýsingu þar sem til stendur að afnema svokallaða áminningarskyldu. Frumvarp um málið var lagt fyrir á Alþingi á dögunum.

Í auglýsingunni eru nöfn fyrrnefndra stéttarfélaga undir og svo er vísað á vefsíðuna godaminning.is sem stéttarfélögin standa á bak við.

„Ríkisstjórn Íslands ætlar að ráðast í eina stærstu réttindaskerðingu sögunnar á íslenskum vinnumarkaði — að afnema áminningarskyldu. Það myndi minnka starfsöryggi allra ríkisstarfsmanna. Þessa réttindaskerðingu setja stjórnvöld svo fram sem eins konar mannauðsstjórnunarmál til hagsmuna fyrir starfsfólk í stað þess að grípa til aðgerða til að bæta starfsumhverfið. Með því að afnema áminningarskyldu aukast verulega líkur á óréttlátum, ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum,“ segir á vefsíðunni.

Í hinu svokallaða uppsagnarbréfi stendur að samkvæmt nýju fyrirkomulagi hafi áminningarskylda verið afnumin og það þýði að ekki er lengur gerð krafa um að veitt sé áminning eða gefið sé tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.

„Mistök í starfi eru því ekki lengur liðin. Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði. Á þeirri forsendu hefur verið tekin ákvörðun um uppsögn þína frá störfum án aðvörunar. Við hvetjum þig til að fylgjast vel með hvaða réttindi verða afnumin næst.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hinir handteknu á Höfðatorgi hafi engin tengsl við Hamas

Hinir handteknu á Höfðatorgi hafi engin tengsl við Hamas
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Siggi Stormur ómyrkur í máli: „Með því ljótara sem ég hef séð síðustu vikur og mánuði“

Siggi Stormur ómyrkur í máli: „Með því ljótara sem ég hef séð síðustu vikur og mánuði“
Fréttir
Í gær

Gerður afturreka með fjölda ásakana á hendur eiganda Glerártorgs

Gerður afturreka með fjölda ásakana á hendur eiganda Glerártorgs
Fréttir
Í gær

Jón Kalman þungt hugsi eftir frétt RÚV: Enginn þingmaður steig fram og sagði: „Nei, þetta gerum við ekki“

Jón Kalman þungt hugsi eftir frétt RÚV: Enginn þingmaður steig fram og sagði: „Nei, þetta gerum við ekki“