

Gefin var út gul viðvörun fyrir allt landið í gær en hún hefur nú verið uppfærð í appelsínugula fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa og Miðhálendið.
Á höfuðborgarsvæðinu tekur viðvörunin gildi klukkan átta í fyrramálið og gildir hún til klukkan 13 að óbreyttu. Á vef Veðurstofunnar segir:
„Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.“
Á Suðurlandi verður veðrið enn verra og má gera ráð fyrir suðaustan 20 til 28 metrum á sekúndu og gætu vindhviður farið yfir 40 metra á sekúndu. Búast má við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð og verður ekkert ferðaveður fra klukkan 7 í fyrramálið til klukkan 13. Svipaða sögu er að segja af Faxaflóa.
Veðrið verður skaplegra í öðrum landshlutum en þó verða gular viðvaranir gildandi fram eftir degi. Á Vestfjörðum má gera ráð fyrir austan 15 til 25 metrum á sekúndu og gætu vindhviður staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu. Þar, líkt og í öðrum landshlutum, má búast við snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður gul viðvörun í gildi frá klukkan 10 til 16 á morgun og má búast við snjókomu og skafrenningi og versnandi færð. Vindhviður gætu farið staðbundið yfir 35 metra á sekúndu.
Á Norðurlandi eystra gildir gul viðvörun frá klukkan 13 til 20 og á Austurlandi og Austfjörðum frá klukkan 14 til 20. Í þessum landshlutum má búast við snjókomu og skafrenningi og versnandi færð, einkum á fjallvegum. Á Suðausturlandi verður gul viðvörun í gildi frá klukkan 8 til 16.
Hægt er að kynna sér veðurspána betur á vef Veðurstofu Íslands.