fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Einar varar við „ástandi” á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Út frá því hvað óþægindaþröskuldurinn í veðri og færð hefur hefur farið lækkandi síðustu árin, má alveg reikna með „ástandi“ suðvestanlands og þá einkum á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið.”

Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á Facebook-síðu sinni.

Eins og greint var frá í morgun hefur Veðurstofa Íslands gefið út appelsínugula viðvörun í nokkrum landshlutum í fyrramálið og má búast við því að veðrið verði einna verst á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá einnig: Vonskuveður á höfuðborgarsvæðinu á morgun – Viðvörunin orðin appelsínugul

Í viðvörun Veðurstofunnar kemur fram að búast megi við suðaustan 18-25 metrum á sekúndu og vindhviður gætu staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu.

„Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni,“ segir á vef Veðurstofunnar en appelsínugula viðvörunin á höfuðborgarsvæðinu gildir frá klukkan átta í fyrramálið til klukkan 13.

Einar segir í færslu sinni að þó hann eigi að heita í fríi frá veðrinu í dag komist hann ekki hjá því að sjá ákveðin merki eða teikn á spákortunum.

„Á undan skilum djúprar lægðar hvessir mjög í í 500-1.500 m hæð. Fyrra spákortið sýnir vind í 500 m. hæð kl. 9 í fyrramálið. Svo mikill mikill vindur í þessari hæð sést kannski einu sinni á vetri. Guli liturinn 35 m/s og sá fjólublái 40 m/s. Spurning í hve ríkum mæli sá vindur skilar sér jarðar. Á öðrum spákortum er vindhraðinn bremsaður niður 15-20 m/s (í 10 m) á höfuðborgarsvæðinu.”

Einar segir að vindröstin á undan skilunum hitti fyrir kalt landið að þessu sinni. Hann birtir svo annað kort frá Veðurstofunni sem gefur til kynna nokkuð ákafa snjókomu klukkan níu í fyrramálið.

„Úr verður talsverður bylur og víða mjög takmarkað skyggni, eins og þetta er sýnt, frá því kl. 7 eða 8 og til um kl. 11 á versta tíma á virkum degi. Veðurstofan hefur nú þegar gefið út appelsínugula viðvörun suðvestanlands. Spá Bliku gefur líka til kynna nokkuð ákafa ofankomu frá kl. 7 til 12 í Reykjavík. Síðan lægir og hlánar, í það minnsta á láglendi.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni