

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins mælist eindregið til þess að fólk haldi sig heima á morgun á meðan vonskuveðrið gengur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Vegna vonskuveðurs, sem spáð er á morgun, mælist aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Veðrið verður orðið skaplegt strax eftir hádegi og gott er ef fólk frestar ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð.“
Athygli er jafnframt vakin á því að vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu verður lokað klukkan 04 í nótt og verður lokað þar til veðrið gengur yfir, en þetta gildir meðal annars um Vesturlandsveg um Kjalarnes og Hellisheiði. Eins er óvissustig á Reykjanesbraut frá klukkan 06 í fyrramálið.
„Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar. Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun. Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.“
Búist er við miklu álagi á viðbragðsaðilum snemma í fyrramálið og fram eftir hádegi, þeir muni því ekki hafa tök á að aðstoða fólk við að komast til og frá vinnu, þar með talið heilbrigðisstarfsmenn.