fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Árásin á Höfðatorgi: Mennirnir sagðir tengjast Hamas – Lögreglumenn áhyggjufullir

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 07:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hluti þeirra einstaklinga sem handteknir voru eftir alvarlega líkamsárás á Höfðatorg er grunaður um að tengjast vígasamtökum Hamas.

Greint er frá þessu á forsíðu Morgunblaðsins í dag. Þar kemur fram að samkvæmt heimildum hafi fundist myndefni sem sýnir þá meðhöndla fjölskotariffla af gerðinni AK-47 á erlendri grund.

Morgunblaðið vísar í ónefnda lögreglumenn sem sagðir eru hafa séð myndefnið en þeir vilja ekki koma fram undir nafni. Herma heimildir blaðsins að mennirnir hafi borið merki Hamas á myndefninu og að hluti mannanna sé á lista Interpol yfir grunaða hryðjuverkamenn.

DV hefur greint frá því að árásin, þar sem sjö voru upphaflega handteknir, hafi tengst skuldauppgjöri. Árásarþolar voru tveir og er þeir íslenskir. Annar lá um tíma á gjörgæsludeild og herma heimildir DV að brotaþolarnir og árásarmennirnir hafi þekkst og höfðu þeir mælt sér mót. Segir Morgunblaðið að þeir séu með ríkisfang í Svíþjóð, Palestínu og öðrum ríkjum Mið-Austurlanda.

Sjá einnig: Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að lögregla hafi miklar áhyggjur af þróun mála og nýr veruleiki blasi við. Árásin hafi verið framin á meðal almennings og almennir borgar hefðu vel getað dregist inn í atburðarásina.

Nánar um málið á forsíðu Morgunblaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump hótar algjörri tortímingu Írans – „Þið munuð komast að því hvað gerist“

Trump hótar algjörri tortímingu Írans – „Þið munuð komast að því hvað gerist“
Fréttir
Í gær

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunur um brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti

Grunur um brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti