fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fréttir

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. mars 2026 10:27

Málið kom upp á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri árið 2024. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Akureyrarbær hefur beðist afsökunar á því að hafa ekki upplýst foreldra barna á leikskólanum Tröllaborgum fyrr vegna máls sem kom upp þar árið 2024 en þá var starfsmaður rekinn vegna gruns um óviðeigandi framkomu gegn barni á leikskólanum. Hvers eðlis framkoman var kemur ekki fram í tilkynningunni en starfsmaðurinn var kærður til lögreglu en málið var fellt niður. Tilkynning Akureyrarbæjar fer hér á eftir í heild sinni:

Akureyrarbær rýnir verkferla vegna barnaverndarmála í kjölfar máls frá 2024

Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla.

Ýmislegt bendir til þess að upplýsingaflæði hafi á þeim tíma ekki verið fullnægjandi. Markmið Akureyrarbæjar er að tryggja með afgerandi hætti að sambærileg mál séu í framtíðinni meðhöndluð á eins skýran og faglegan hátt og unnt er.

Mánudaginn 23. mars voru haldnir fundir með foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Tröllaborgum. Fundina sátu fulltrúar bæjarins, lögreglu, barnaverndar, stjórnendur skólans og sérfræðingur um hagnýtar leiðbeiningar til barna og foreldra ef upp kemur grunur um brot á barni.

Tilgangur fundarins var að veita foreldrum upplýsingar um málið, auk þess að bjóða upp á ráðgjöf um hvernig ræða megi erfið mál við börn. Foreldrum var jafnframt leiðbeint um hvert þeir geti leitað hafi þeir áhyggjur af velferð barna sinna og hvernig koma megi á framfæri ábendingum til lögreglu.

Sveitarfélagið mun óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til skoðunar reynist forsendur fyrir því, þannig að óvissa um atvik og niðurstöður verði sem minnst fyrir foreldra og starfsfólk.

Akureyrarbær biðst afsökunar á því að foreldrar hafi ekki fengið upplýsingar fyrr. Á næstu vikum verður verklag bæjarins varðandi innri ferla og skipulag rýnt og endurbætt. Markmiðið er að bæta upplýsingaflæði, verklag og viðbrögð, og skerpa á hlutverkaskiptingu í viðkvæmum málum. Hlutaðeigandi aðilar, þar á meðal starfsfólk og foreldrar, munu koma að þeirri vinnu auk þess sem leitað verður ráðgjafar sérfræðinga eftir þörfum. Einnig er lögð rík áhersla á fræðslu til starfsfólks, foreldra og barna sem hluta af forvörnum gegn brotum á börnum.

Öryggi og velferð allra barna skal ávallt og undantekningarlaust vera í fyrirrúmi þegar þjónusta sveitarfélagsins er annars vegar og mikilvægt er að foreldrar geti borið fullt traust til þeirra verkferla sem unnið er eftir.

Akureyrarbær vill taka það skýrt fram að hann ber fullt traust til starfsfólks leikskólans Tröllaborga hér eftir sem hingað til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum
Fréttir
Í gær

Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts hófst í morgun

Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts hófst í morgun
Fréttir
Í gær

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin
Fréttir
Í gær

Starfsfólk Landspítalans fær engin páskaegg í ár

Starfsfólk Landspítalans fær engin páskaegg í ár
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fluttur á bráðamóttöku eftir stunguárás í miðbænum

Fluttur á bráðamóttöku eftir stunguárás í miðbænum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafnarfjarðarbær krafinn um háa fjárhæð vegna skemmda á húsnæði fyrir hælisleitendur – Engin samþykkt kjörinna fulltrúa finnst

Hafnarfjarðarbær krafinn um háa fjárhæð vegna skemmda á húsnæði fyrir hælisleitendur – Engin samþykkt kjörinna fulltrúa finnst
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“

Svara fyrir stóra ísmálið – „Smjör er annað geymsluform rjóma“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi

Jakob Rolland forherðist í bælingarmálinu – Segir hættu á „einræði“ hinsegin hugmyndafræði á Íslandi