fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Fréttir

Fortinet verðlaunar OK

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 15:08

Hannes Björnsson, sölustjóri samstarfsaðila á Íslandi/North Atlantic, Ingólfur A. Ágústsson, sérfræðingur hjá OK, Andri Tryggvason, forstöðumaður netlausna hjá OK, og Sævar Haukdal Böðvarsson, framkvæmdastjóri Fortinet á Íslandi/North Atlantic með viðurkenningarnar frá Fortinet. Mynd: Bent Marinósson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæknifyrirtækið OK hefur verið valið Fortinet Partner of the Year 2025 á Íslandi. Samhliða því hlaut Ingólfur A. Ágústsson, sérfræðingur hjá fyrirtækinu, viðurkenninguna Fortinet Champion of the Year 2025.

Viðurkenningarnar eru veittar þeim samstarfsaðilum og sérfræðingum sem hafa náð framúrskarandi árangri í sölu, ráðgjöf og innleiðingu lausna Fortinet á árinu, eins og segir í tilkynningu.

Ingólfur hefur sérhæft sig í netöryggislausnum Fortinet og leitt verkefni fyrir íslensk fyrirtæki og opinbera aðila. Hann hefur jafnframt lagt áherslu á fræðslu og vottanir á sviðinu.

Að mati forsvarsmanna Fortinet endurspeglar valið á OK sem Partner of the Year árangur fyrirtækisins í uppbyggingu netöryggislausna og nánu samstarfi við Fortinet á íslenskum markaði.

,,Við erum að sjálfsögðu ánægð og stolt með þessa stóru viðurkenningu frá Fortinet. Þetta er mikill heiður og viðurkenning á fagmennsku og teymisvinnu á sviði netöryggis hjá OK,“ segir Andri Tryggvason, forstöðumaður netlausna hjá OK. OK er samstarfsaðili Fortinet á Íslandi og veitir fyrirtækjum og opinberum aðilum netöryggislausnir og ráðgjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Skuggaleg könnun í Eyjafirði – Fjölmargir Einingarfélagar hafa frestað læknisheimsóknum og lyfjakaupum

Skuggaleg könnun í Eyjafirði – Fjölmargir Einingarfélagar hafa frestað læknisheimsóknum og lyfjakaupum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Vildi láta meta hvort barnsfaðirinn væri með vitræna getu til að véfengja rúmlega 50 ára faðernisviðurkenningu

Vildi láta meta hvort barnsfaðirinn væri með vitræna getu til að véfengja rúmlega 50 ára faðernisviðurkenningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn vonsviknir – Engir íshellar í íshellaferðum

Ferðamenn vonsviknir – Engir íshellar í íshellaferðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ísland og Asóreyjar verði mögulega skotpallurinn fyrir árásir Bandaríkjanna á Íran

Ísland og Asóreyjar verði mögulega skotpallurinn fyrir árásir Bandaríkjanna á Íran