fbpx
Fimmtudagur 19.febrúar 2026
Fréttir

KAPP styrkir þjónustu við fiskeldi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 17:23

Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, Sölvi Sturluson Snæfeld fiskeldisfræðingur og nýr starfsmaður KAPP, og Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri félagsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KAPP hefur ráðið Sölva Sturluson Snæfeld fiskeldisfræðing til starfa í þeim tilgangi að styrkja enn frekar þjónustu félagsins og lausnir fyrir fiskeldi.

KAPP sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fisk- og kjúklingavinnslu, fiskeldi og matvöruverslanir. Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP, segir að mikil aukning hafi orðið í þjónustu við fiskeldisfyrirtæki á síðasta ári og að stefna félagsins sé að tryggja framúrskarandi þjónustu fyrir fiskeldisgeirann, rétt eins og aðrar atvinnugreinar sem félagið þjónustar.

„Fiskeldi er mikilvægur hluti af þróun sjálfbærs matvælaiðnaðar. Þar er gríðarleg nýsköpun og spennandi þróun í gangi. Á síðasta ári höfum við aukið áherslu okkar á bæði hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausnir fyrir fiskeldi og sú vegferð hefur skilað sér í ánægðum viðskiptavinum og aukinni eftirspurn. Með ráðningu Sölva, sem viðbót við öflugt teymi okkar, erum við að fylgja þeirri stefnu eftir og hyggjumst bjóða upp á enn breiðara úrval þjónustu og lausna á komandi mánuðum,“ segir Ólafur Karl.

Fyrir er Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP, sem leiðir þróunarstarf félagsins ásamt öflugum hópi sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu. ,,Með þessu teymi tel ég að við séum í fremstu röð þegar kemur að þjónustu við fiskeldi. Við hlökkum mikið til að taka næstu skref með viðskiptavinum okkar,“ segir Ólafur Karl.

Sölvi er vel kunnugur fiskeldisbransanum en hann hefur starfað í greininni undanfarna þrjá áratugi og býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviðinu. Hann hefur komið að ræktun á laxi, regnbogasilungi, bleikju, risarækju, sæeyrum, þorski, sandhverfu og hrognkelsum. Sölvi starfaði síðustu átta ár sem framkvæmdastjóri Aqua.is/Eldvara ehf, sem er innflutnings- og þjónustufyrirtæki fyrir fiskeldi.

,,Það er afar mikilvægt að íslensk þjónustufyrirtæki séu til staðar til að styðja við ört vaxandi fiskeldi á landi. Þar eru vatnsgæði algjör lykilþáttur í því að starfsemin takist vel og þar mun okkar fókus liggja. Með aukinni áherslu á vöktun og stýringu á vatnsgæðum, ásamt öðrum lykilþáttum, liggur leiðin að árangri í þessari atvinnugrein sem mun margfaldast að stærð á næstu árum,“ segir Sölvi.

Ólafur Karl segir að það sé aðdáunarvert að fylgjast með þeim öflugu fiskeldisfyrirtækjum sem starfa hér á landi. ,,Slík verkefni krefjast mikillar þekkingar, elju og hugsjónar og uppbyggingin í greininni er mikil, líkt og almenningur þekkir, með fyrirtækjum á borð við Thor Landeldi, Laxey, Samherja, First Water, Sæbýli og fleiri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Ábyrgðarlausir“ ferðamenn á vinsælum ferðamannastað gætu átt yfir höfði sér sekt fyrir notkun neyðarþjónustu

„Ábyrgðarlausir“ ferðamenn á vinsælum ferðamannastað gætu átt yfir höfði sér sekt fyrir notkun neyðarþjónustu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska þjóðin klofin í afstöðu til Bandaríkjanna – Mesti stuðningurinn frá Miðflokknum en sá minnsti frá Pírötum

Íslenska þjóðin klofin í afstöðu til Bandaríkjanna – Mesti stuðningurinn frá Miðflokknum en sá minnsti frá Pírötum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu þvær hendur sínar af Bakkakoti – „Ég vissi ekkert af þessu“

Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu þvær hendur sínar af Bakkakoti – „Ég vissi ekkert af þessu“
Fréttir
Í gær

Hörður Snapchatperri tekur upp fyrri iðju – Játaði fyrir blaðamanni að hafa sent 12 ára stúlku SMS

Hörður Snapchatperri tekur upp fyrri iðju – Játaði fyrir blaðamanni að hafa sent 12 ára stúlku SMS
Fréttir
Í gær

Sirrý er fúl á móti eftir frétt RÚV í gær: „Ekki alveg það sem heimurinn þarf“

Sirrý er fúl á móti eftir frétt RÚV í gær: „Ekki alveg það sem heimurinn þarf“
Fréttir
Í gær

Harðar deilur í Facebook-hópi Breiðhyltinga – Skemmdir unnar á bílnum eftir að hún lagði uppi á gangstétt

Harðar deilur í Facebook-hópi Breiðhyltinga – Skemmdir unnar á bílnum eftir að hún lagði uppi á gangstétt