fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

HP sigrar á alþjóðlegri tæknimessu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. febrúar 2026 15:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

HP Poly Mission heyrnartólalínan var valin „Best á sýningunni“ (Best of Show) í flokki hljóð- og myndlausna (AV Technology) á ISE 2026 tæknimessunni í Barcelona. ISE er ein stærsta og áhrifamesta tækniráðstefna heims á sviði hljóð-, mynd- og kerfislausna (AV & systems integration) þar sem um 1.600 sýnendur kynna nýjungar á hverju ári.

Í umsögn dómnefndar kemur fram að heyrnartólin skeri sig úr fyrir nýstárlega nálgun og notendavæna hönnun. Nefndin bendir einnig á að Mission-línan endurspegli framsækna þróun sem HP Poly leggur áherslu á fyrir notendur.

Poly, sem upprunalega varð til með sameiningu Polycom og Plantronics árið 2018, hefur lengi verið þekkt fyrir samskiptabúnað á vinnustöðum og í fjarskiptum. Eftir að HP eignaðist vörumerkið árið 2022 hefur verið lögð aukin áhersla á notendaupplifun, hljóðtækni og lausnir fyrir blandað vinnuumhverfi. Nýja Mission-línan er hluti af þeirri þróun, þar sem spjótunum er beint að stuðningi við ólíka vinnuheima, hvort sem fólk starfar að heiman, á skrifstofu eða í blönduðu vinnufyrirkomulagi. Lögð er sérstök áhersla á þægindi til lengri tíma, skýrt hljóð í samtölum og hnökralausar tengingar við mismunandi tæki og vinnuumhverfi.

„Markaður fyrir heyrnartól og fjarfundalausnir hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár, ekki síst eftir heimsfaraldurinn, þegar fjarvinna jókst gríðarlega. Á sama tíma spyrja fyrirtæki hvaða tæki geti raunverulega bætt samskipti og dregið úr flækjustigi. HP Poly Mission-línan svarar þeirri spurningu svo sannarlega, ef marka má viðbrögðin á ISE,“ segir Gísli Þorsteinsson forstöðumaður Notendalausna tæknifyrirtækisins. „Ljóst er að HP hefur fundið fótfestu á nýjum markaði þar sem þörfin fyrir hljóðgæði sem notendavæna hönnun er mikil.“

Fyrstu HP Poly Mission heyrnartólin eru væntanleg á markað í næsta mánuði, eins og segir í tilkynningu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“
Fréttir
Í gær

Maður féll í Ölfusá

Maður féll í Ölfusá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn