fbpx
Miðvikudagur 07.janúar 2026
Fréttir

Sérfræðingur segir innrás Bandaríkjanna í Grænland vera afar ólíklega

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 6. janúar 2026 18:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra, segir afar ólíklegt að Bandaríkjamenn ráðist inn í Grænland með hervaldi. Stórkarlalegar yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta um tilkall Bandaríkjamanna til Grænlands hafa vakið Dönum og raunar öðrum Evrópubúum ugg í brjósti.

Albert segir í pistli á Facebook að innrás sé afar ólíkleg og engar upplýsingar styðji fullyrðingar um slík áform. Bandaríkjamenn eigi hins vegar ríka hagsmuni á norðurslóðum. Albert skrifar:

„Þrátt fyrir móðgandi ummæli Trumps Bandaríkjaforseta í garð Grænlendinga í þá veru að Bandaríkin eigi að fá yfirráð yfir landi þeirra munu þau ekki ráðast inn með hervaldi. Engar upplýsingar styðja slíkt. Þó er eðlilegt að bregðast við með þeim hætti og raunar hófsemd sem grænlenskir og danskir forystumenn hafa sýnt þrátt fyrir ögrandi framkomu forsetans.

En innrás er afar ólíkleg. Komi hins vegar til þess á einhverjum punkti að Trump stjórnin seilist með öðrum ósæmilegum hætti til Grænlands, svo sem með undirróðri og þrýstingi, þá hefði það afdrifaríkar og ófyrirsjáanlegar afleiðingar – þar á meðal og ekki síst fyrir NATO.

Hafa þarf hugfast í umrótinu sem yfirlýsingar Trumps valda að Grænland, Ísland og Bandaríkin eiga ríka sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum; hagsmuni sem eiga að líkindum eftir að stækka mjög á komandi árum og áratugum. Hlýnun jarðar og tilkoma Kína sem risaveldis munu líklega valda mestu þar um eins og áður hefur verið fjallað um í greinum hér á vefsíðunni.“

Albert segir að íslensk stjórnvöld þurfi að eiga náið samstarf við Bandaríkin um norðurslóðir auk þess sem efla þurfi samráð við Grænland:

„Af þessum sökum þurfa íslensk stjórnvöld að eiga svo náið samráð og samskipti við Bandaríkin um norðurslóðir og kostur er. Jafnframt þarf auðvitað að efla enn frekar samráð og tengsl Íslands við Grænlendinga. Eðlilegt samráð eftir þörfum við Danmörku einnig er auðvitað sjálfsagt.

Hagsmunir þessara landa á norðurslóðum eru augljósir og Ísland felur að áliti bandarískra stjórnvalda í sér aðkomuleið (gateway) að norðurslóðum sakir landfræðilegrar legu landsins.

Enn ríkir í aðalatriðum stöðugleiki á norðurslóðum. Trump hefur á ný látið út úr sér að Grænland sé “umkringt rússneskum og kínverskum skipum” en það eru staðlausir stafir.

Í hernaðarlegu tilliti hafa Bandaríkin það sem þau vilja á Grænlandi líkt og verið hefur í meira en áttatíu ár. Þar skipta mestu ratsjárstöðvar á norður Grænlandi þar sem áður hét Thule en er heitir nú Pituffik. Ratsjárstöðvarnar hafa úrslitaþýðingu fyrir varnir Norður Ameríku. Bandaríkin hafa ekki óskað eftir meiri hernaðarlegri aðstöðu á Grænlandi.

Þjóðaröryggi Bandaríkjanna er greinilega ekki í húfi og bandarísk fyrirtæki hafa almennt ekki haft neinn verulegan áhuga á að fá aðgengi að málmum og námagreftri á Grænlandi. Nauðsynlega innviði til þess skortir víðast í risastóru landinu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögregla skoðar hvort piltarnir hafi ætlað að ógna öðrum með skotvopnunum

Lögregla skoðar hvort piltarnir hafi ætlað að ógna öðrum með skotvopnunum
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór fer ekki fram í borginni – Svona útskýrir hann ákvörðun sína

Guðlaugur Þór fer ekki fram í borginni – Svona útskýrir hann ákvörðun sína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágranni frá helvíti býr enn í Bríetartúni – Tveir sjúkrabílar og fjórir lögreglubílar komu um síðustu helgi

Nágranni frá helvíti býr enn í Bríetartúni – Tveir sjúkrabílar og fjórir lögreglubílar komu um síðustu helgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einstök boðsferð til ævintýraheimsins Oz

Einstök boðsferð til ævintýraheimsins Oz