fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fréttir

Þingmaður vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Ritstjórn DV
Laugardaginn 3. janúar 2026 11:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Árnason, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, býður sig fram til oddvita flokksins í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí.

Hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í Grindavík þegar bærinn var rýmdur fyrir rúmum tveimur árum vegna jarðhræringa og eldgoss, en í dag er hann búsettur í Reykjanesbæ.

„Þetta er samfélag sem við þekkjum og samfélag sem þekkir okkur. Á þessum erfiðu tímum tóku bæjarbúar utan um fjölskyldu mína. Það var ekki sjálfsagt, en það var mannlegt og það gleymist aldrei,“ segir Vilhjálmur í tilkynningu.

Þingmaðurinn segir fjölskyldur í Reykjanesbæ standa frammi fyrir áskorunum á borð við bið eftir leikskólaplássum, hærri íþróttagjöld og hærri fasteignaskatta. Tryggja þurfi fjölbreyttari uppbyggingu sem taki mið af ólíkum þörfum fólks sem vill byggja sér framtíð í sveitarfélaginu.

„Stefna meirihlutans, um að yfir 95% allra nýbygginga eigi að vera fjölbýlishús, er ekki framtíðarsýn að mínu skapi og ekki til þess fallin að byggja upp sterkt og fjölskylduvænt samfélag.“

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins fer fram í lok janúar og Vilhjálmur hefur boðað til opins fundar með bæjarbúum á Hótel Keflavík á miðvikudaginn klukkan 19:30.

„Reykjanesbær er ljósabær og ég trúi því af öllu hjarta að hér sé hægt að byggja upp samfélag þar sem allir fá að láta ljós sitt skína. Megináhersla næstu bæjarstjórnar verður að vera sú að tryggja að Reykjanesbær verði besti staður landsins fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“