

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sækist eftir 3. eða 4. sæti á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Frá þessu greinir hún á Facebook.
Dóra Björt var áður Pírati en gekk í Samfylkinguna með pompi og prakt í desember.
„Mér finnst mikilvægt að vera sönn í því sem ég geri, ég er í stjórnmálum af ástríðu og læt hjartað ráða för. Þess vegna var þetta skref nauðsynlegt fyrir mig. Ég er jafnaðarmanneskja í húð og hár og hef sýnt það í öllu sem ég geri að ég brenn fyrir jafnrétti, jafnræði og jöfnum tækifærum.“
Dóra Björt þakkar hlýjar móttökur í Samfylkingunni og rekur að undanfarin ár hafi hún verið forystumanneskja í borginni þar sem hún gegndi formennsku í umhverfis- og skipulagsráði sem og mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði.
„Ég hef mikilvæga reynslu og yfirsýn og nú þegar heilir þrír dýrmætir fulltrúar í fullu starfi hafa ákveðið að hætta störfum þarf að tryggja skynsamlegt jafnvægi milli reynslu og endurnýjunar.“
Dóra Björt segist óska eftir áframhaldandi umboði til að vinna að öruggara umhverfi fyrir börnin, öruggu húsaskjóli, jafnrétti, velferð, jafnræði, réttlæti og ábyrgð í rekstri og stjórnun.
„Mér finnst mikilvægt að koma ekki inn með einhverjum gassagangi, heldur af ákveðinni auðmýkt og virðingu. Mér þætti vænt um stuðning ykkar í 3. eða 4. sæti á lista. Takk fyrir hlýjuna og hvatninguna. Ég vonast til að fá að vinna fyrir ykkur, Samfylkingunni, Reykjavík og Reykvíkingum öllum til heilla.“