fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fréttir

Spyr hvort stjórnvöld séu reiðubúin að spyrja þjóðina um verðtrygginguna

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. janúar 2026 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er sammála stjórnvöldum hvað varðar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda skuli aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Hann spyr þó hvort stjórnvöld séu tilbúin að treysta þjóðinni í fleiri stórum málum.

Vilhjálmur skrifar á Facebook í dag:

„Stjórnvöld segja nú að mikilvægt sé að treysta þjóðinni og leyfa henni að kjósa um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB. Ég er sammála því sjónarmiði. Það á að treysta þjóðinni og leyfa henni að segja sitt álit um stór ágreinings- og hagsmunamál.

Þess vegna spyr ég: af hverju eru stjórnvöld ekki reiðubúin að spyrja þjóðina hvort banna eigi verðtryggð lán til heimilanna?“

Samkvæmt skoðanakönnunum undanfarin ár er mikill meirihluti þjóðarinnar hlynntur því að afnema verðtrygginguna. Vilhjálmur bendir á að bara í desember hafi verðtryggðar skuldir heimilanna hækkað um 23 milljarða þegar verðbólgan hækkað um 1,15 prósent milli mánaða.

„Ef stjórnvöld meina eitthvað með því að treysta þjóðinni þá hljóta þau líka að vera tilbúin að leyfa henni að kjósa um það hvort verðtrygging lána til heimilanna eigi að heyra sögunni til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda