fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fréttir

„Getum ekki byggt gott umhverfi fyrir fólk, ef við vitum ekki hvers konar umhverfi er gott“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 23. janúar 2026 11:35

Páll Jakob Líndal

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur verður með áhugaverðan fyrirlestur á Borgarbókasafninu Spönginni mánudaginn 26. janúar undir yfirskriftinni 70 götumyndir og fleira.

Í fyrirlestri sínum ætlar Páll að fjalla um hvaða umhverfisþættir það eru sem skipta máli í hinu byggða umhverfi ef byggja á manneskjulegt og uppbyggilegt umhverfi.

„Á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land er nú að eiga sér stað kúvending í þróun byggðar,“ segir hann. „En spurningin er, hvort sú kúvending fari fram á forsendum fólksins.“

Páll hefur áralanga reynslu af skipulagsmálum og verkefnum sem snúa að verndun byggingararfsins, ásamt því að vinna að sálfræðilegum rannsóknum. Þá hefur hann um árabil verið ötull talsmaður þess að sálfræðileg sjónarmið fái sitt rými í hönnunar- og skipulagsferlum og lögð sé ríkari áhersla á samspil fólks og umhverfis.

„Hérlendis vantar grunnrannsóknir á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á fólk, og það þarf að bæta þar úr,“ nefnir hann í því samhengi. „Við getum einfaldlega ekki byggt gott og heilsusamlegt umhverfi fyrir fólk ef við vitum ekki hvers konar umhverfi er gott og heilsusamlegt fyrir fólk.“

Páll ætlar að ræða mat fólks á umhverfinu í fyrirlestrinum, en umræðan byggir á niðurstöðum könnunar sem hefur verið í gangi frá árinu 2014.

Ef tími gefst verður jafnframt fjallað um íbúasamráð og hvernig nýta má tölvutækni til að bæta samtalið milli íbúa, stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila.

Um Pál Jakob Líndal

Páll er með doktorspróf í umhverfissálfræði frá Háskólanum í Sydney. Hann er sérfræðingur í mati á sálfræðilegum áhrifum umhverfis á heilsu og vellíðan, hvort sem um er að ræða náttúru eða manngert umhverfi.

Nánar um fyrirlestur Páls á heimasíðu Borgarbókasafnsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“

Egill ósáttur við Höllu – „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“

Ritdeilur Láru og Elíasar halda áfram – „Hér leynist úlfur í sauðagæru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda