fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

„Við höfum nokkrum sinnum þurft að brjóta ofan af ánni 1. apríl“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. mars 2026 17:30

Stefán Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr þáttur af Veiðin með Gunnari Bender er nú aðgengilegur hér fyrir neðan. Í þættinum fer Gunnar í Leirá í Leirársveit og hittir þar fyrir hjónin Stefán Sigurðsson og Hörpu Hlín Þórðardóttur.

„Þetta er að byrja, veturnir verða styttri og styttri“, segir Harpa Hlín „Við gátum ekkert veitt í fyrra, það var allt frosið fyrstu tvær vikurnar. Við höfum nokkrum sinnum þurft að brjóta ofan af ánni 1. apríl. Stefán ætti nú að vita hvað hann er að gera“.

Segir hún erfitt fyrir þau hjónin að komast í veiði á sumrin, vorið sé tíminn fyrir þau.

Gunnar Bender og Harpa Hlín Þórðardóttir

„Ha hvað er þetta, fiskur?“ segir Gunnar hlæjandi þegar Stefán hendir skóm til hans.

Hjónin halda áfram að kasta því fiskurinn liggur einhvers staðar í felum í hylnum.

„Ég hélt þetta væri sá stóri,“ segir Gunnar, „Nei það var ekki svo gott“, svarar Stefán. „Nú þurfum við bara að finna fiskana.“

Stefán Sigurðsson

Veiðin fer svo að braggast eins og sjá má í myndbandinu.

video
play-sharp-fill

Þættirnir eru unnir í samstarfi við Veiðar.is sem er nýr frétta- og upplýsingavefur um sport- og laxveiðar í íslenskri náttúru. Á vefnum eru nýjustu fréttir úr veiðinni og því sem þar gerist á hverjum tíma, auk viðtala og frásagna af veiðiferðum, reynslu og upplifun einstaklinga og hópa í veiðimennsku.

Gunnar Bender ritstjóri er annálaður áhugamaður um stangveiðar í ám og vötnum sem og auðvitað hafi, og er með áratuga reynslu af sportveiði og veiðimennsku. Gunnar hefur ferðast um landið árið um kring og hitt sportveiðifólk og aðra áhugasama um veiðar og útivist.

Í þessum ferðum sínum dreifir Gunnar meðal annars Sportveiðiblaðinu, einu mest lesna og virtasta tímariti um laxveiðar á Íslandi en Gunnar stofnaði til útgáfunnar fyrir 40 árum og hefur verið þar ritstjóri og útgefandi síðan.

Veiðiþætti Gunnars þekkja margir en hann hefur framleitt slíka þætti um veiðar í villtri náttúru Íslands og frá helstu laxveiðiám landsins. Nokkrir af veiðiþáttum Gunnars eru aðgengilegir á veidar.is og á YouTube rásinni Veiðar.

Leirá í Leirársveit
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fjölskyldur látinna og fyrrverandi hermenn reiðir Trump – Smættar fórnina með Svampi Sveinssyni og Grand Theft Auto

Fjölskyldur látinna og fyrrverandi hermenn reiðir Trump – Smættar fórnina með Svampi Sveinssyni og Grand Theft Auto
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Færist aftur fjör í leikinn á laugardagskvöld

Færist aftur fjör í leikinn á laugardagskvöld
Fréttir
Í gær

Hjón frá Venesúela standa vaktina á Kaffistofu Samhjálpar – „Þetta fólk er ekki árásargjarnt eða ofbeldisfullt“

Hjón frá Venesúela standa vaktina á Kaffistofu Samhjálpar – „Þetta fólk er ekki árásargjarnt eða ofbeldisfullt“
Fréttir
Í gær

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“

Urðar yfir Guðrúnu og kallar hana örvæntingarfullan og misheppnaðan stjórnmálamann – „Tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei“
Fréttir
Í gær

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“

Ágreiningur á milli Trumps og Netanjahú – „Hvers vegna í fjáranum ættum við að gera það?“
Fréttir
Í gær

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir

Karlmaður á áttræðisaldri sviptur fjárræði – Ítrekað orðið svikahröppum að bráð og millifært milljónir
Hide picture