fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Veðurspáin virðist ætla að ganga eftir: „Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. mars 2026 07:12

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við viljum ítreka að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, en appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi til kl. 13.“

Svo segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins vegna yfirvofandi vonskuveðurs.

„Samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofunnar eru spár að ganga eftir og má gera ráð fyrir að veðrið gangi niður fljótlega eftir hádegið á höfuðborgarsvæðinu. Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi líkt og komið hefur fram. Leik- og grunnskólar eru opnir en með lágmarksopnun og með fáu starfsfólki og einungis gert ráð fyrir þeim sem nauðsynlega þurfa að mæta með börn sín í grunn- og leikskóla.“

Í tilkynningunni er bent á að hefðbundið leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarf hefjist eftir að viðvörun gengur yfir. Minnt er á að lokað er fyrir umferð á Hellisheiði og á Vesturlandsvegi um Kjalarnes. Reykjanesbraut er á óvissustigi til hádegis og gæti lokast með stuttum fyrirvara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Hinir handteknu á Höfðatorgi hafi engin tengsl við Hamas

Hinir handteknu á Höfðatorgi hafi engin tengsl við Hamas
Fréttir
Í gær

Vonskuveður á höfuðborgarsvæðinu á morgun – Viðvörunin orðin appelsínugul

Vonskuveður á höfuðborgarsvæðinu á morgun – Viðvörunin orðin appelsínugul
Fréttir
Í gær

Árásin á Höfðatorgi: Mennirnir sagðir tengjast Hamas – Lögreglumenn áhyggjufullir

Árásin á Höfðatorgi: Mennirnir sagðir tengjast Hamas – Lögreglumenn áhyggjufullir