

Eins og DV og fleiri fjölmiðlar hafa greint frá var Reykjanesbraut lokað í morgun og koma þurfti ökumönnum sem festust þar til hjálpar en það reyndist erfitt um tíma.
Miðað við myndbönd sem liðsmenn björgunarsveitarinnar Þorbjörns, í Grindavík, tóku þegar þeir voru að aðstoða ökumenn á Reykjanesbrautinni í morgun þá er óhætt að segja að veðrið hafi verið kolklikkað, mikill vindur, mikil snjókoma og sáralítið skyggni. Myndböndin frá Þorbirni má sjá horfa á hér fyrir neðan.