fbpx
Fimmtudagur 26.mars 2026
Fréttir

Erfitt ástand á Reykjanesbraut – Þurfa að bíða föst í bílum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. mars 2026 09:41

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vonskuveður gengur nú yfir víða á landinu en færð og skyggni á suðvesturhluta landsins eru erfið og mörgum vegum hefur verið lokað, þar á meðal Reykjanesbraut. Miðað við tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum er ástandið á Reykjanesbraut afar erftitt en fólk sem er fast þar í bílum sínum er beðið að bíða þar sem viðbragðsaðilar komist ekki að þeim.

Segir í tilkynningunni að ökumenn sem eru fastir í bílum sínum á Reykjanesbraut sem og á öðrum vegum séu beðnir halda kyrru fyrir. Það sé 5 bíla árekstur á brautinni, slysalaus, en viðbragðsaðilar komist ekki á vettvang sökum færðar. Ökutæki þveri brautina og snjóruðningstæki eigi mjög erfitt um vik þarna. Veður sé verulega slæmt, ekkert skyggni og mikið rok. Björgunarsveitir séu að gera sitt besta til að komast til fólks en það gangi hægt.

Að lokum segir að þar sem allar flóttaleiðir úr Grindavík séu lokaðar þá muni björgunarsveitir sjá um fylgdarakstur komi til rýmingar. Komi til þess er fólk beðið um að safnast saman íþróttahúsi bæjarins en það kemur fram í tlkynningu frá Grindavíkurbæ.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast

Þvottavélarnar þagna – Kjartan Örn segir ekki nóg að lækka vextina því hagkerfið geti stöðvast
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“