fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Uppnám á Íslendingahóteli á Tenerife þegar sprenging heyrðist og menn með lambhúshettur birtust – „Fólk var hágrátandi“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. mars 2026 13:00

Hótelið er vinsælt hjá Íslendingum. Myndir/aðsendar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið uppnám var núna rétt fyrir hádegi þegar mikil sprenging heyrðist úr bílakjallara á Íslendingahóteli á Tenerife. Þegar menn með lambhúshettur birtust hljóp fólk öskrandi í burtu þar sem það taldi að hryðjuverkaárás væri hafin. En um var að ræða lögreglumenn að elta grunaðan mann.

„Fólk var hágrátandi hérna. Sumir stukku upp í leigubíla og brunuðu í burtu. Garðurinn rýmdist á nokkrum mínútum,“ segir íslenskur maður sem dvelur á hótelinu Tenerife Gara Suites, á Amerísku ströndinni, ásamt eiginkonu sinni.

Fótboltalið frá Garðinum og Hafnarfirði á hótelinu

Hótelið er eitt af þeim vinsælustu hjá Íslendingum og maðurinn segir að núna séu margir hópar Íslendinga þar. Meðal annars fótboltalið frá Garðinum og Hafnarfirði.

Maðurinn var á sundlaugarbakkanum þegar hávaðinn mikli heyrðist.

„Við vorum á sundlaugarbakkanum, ekkert langt frá. Fólk heyrði sprenginguna og fór að kíkja hvað væri að gerast. Svo hljóp það í burtu í skelfingu,“ segir hann.

Skelfing greip um sig

Það sem blasti við fólkinu voru menn með lambhúshettur á höfðinu. Litu þeir út eins og hryðjuverkamenn.

„Við hlupum berfætt út af hótelinu með öllum gestunum. Við héldum að það væri hryðjuverk,“ segir hann. En ekki var um eiginlega sprengingu að ræða heldur mikinn árekstur. Og mennirnir með lambhúshetturnar voru ekki hryðjuverkamenn heldur lögreglumenn, sérsveitarmenn að elta grunaðan mann á bíl. „Það kom allt í einu geðveikur hávaði, eins og sprenging, þegar bíll keyrir inn í bílakjallara. Hann hefur verið á flótta undan lögreglunni.“

Í ljúfa löð

Aðspurður segist maðurinn ekki vita hvort að lögreglan hafi handsamað manninn. Lögreglumennirnir hafi hlaupið í burtu. Hann segist heldur ekki vita til þess að neinn sé slasaður þrát fyrir þessa miklu skelfingu sem greip um sig.

„Þetta virðist vera fallið í ljúfa löð núna,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“
Fréttir
Í gær

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði
Fréttir
Í gær

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt
Hide picture