fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Siggi Stormur ómyrkur í máli: „Með því ljótara sem ég hef séð síðustu vikur og mánuði“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. mars 2026 11:30

Siggi Stormur hvetur fólk til að hafa varann á í fyrramálið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er með því ljótara sem ég hef séð síðustu vikur og mánuði,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, betur þekktur sem Siggi Stormur, í samtali við DV.

Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa í fyrramálið. Búast má við hríðarveðri með talsverðri snjókomu og slæmu skyggni. Viðvörunin tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 7 í fyrramálið og gildir til klukkan 13.

Ætlar að ganga betur frá trillunni

Sigurður segir að ástæða sé til að taka spána alvarlega og hvetur hann fólk til að ganga vandlega frá lausamunum. Sigurður á sjálfur litla trillu og þegar DV heyrði í honum var hann einmitt að fara ganga í það að festa hana betur. Segir hann að öskutunnur og annað geti farið af stað í veðurofsanum.

Hverju eigum við eiginlega von á?

„Það ganga skil yfir landið, fyrst með snjókomu og hríðarbyl, og síðan breytist það reyndar yfir í slyddu og síðar sennilega rigningu. Stóru tíðindin í þessu eru hinn mikli vindhraði sem verður meðal annars hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann og bætir við að vindhviður fari í 40 metra á sekúndu í námunda við fjöll og á leiðum til og frá höfuðborginni.

„Ég á nú von á því að eitthvað af þessu muni bara lokast í fyrramálið,“ segir hann og á þar við leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu. Hann segir jafnframt að innan borgarmarkanna geti ferðalög orðið erfið vegna ófærðar.

Alvöru óveður með vonskuveðri

Hann segir að góðu tíðindin séu þau að veðrið gengur tiltölulega hratt yfir og skilin fari norðaustur yfir land eftir því sem líður á daginn. „En þetta er alvöru óveður með vonskuveðri og stórhríð og öflugum hviðum, þannig að ég myndi ráðleggja fólki að hafa varann á,“ segir hann.

Veðrið eftir áramót hefur heilt yfir verið ágætt og var í raun tíðindalítið fyrstu vikur ársins. Í marsmánuði hefur tíðin verið rysjóttari. Sigurður hvetur fólk til að vera á tánum.

„Það er vont að vera alltaf að treysta á björgunarsveitirnar með alla hluti. Þær eru búnar að hafa í nógu að snúast og verða sjálfsagt í viðbragðsstöðu ef ég þekki þær rétt. En þetta lítur illa út, þetta er ljótt veður.“

Næsta lægð handan við hornið

Sigurður ítrekar að veðrið gangi hratt yfir og það séu góðu fréttirnar. „En á hinn bóginn er bara bið eftir næstu lægð, hún er handan við hornið og tekur við af þessari þegar hún er búin að ganga yfir landið,“ segir Sigurður sem á von á því að hún láti að sér kveða á laugardag.

„Eins og hún lítur út akkúrat núna – það er samt of snemmt að fullyrða – þá er hún ekki eins slæm og þessi sem kemur í nótt og á morgun.“

Sigurður segir að fram undan sé síðan betri tíð enda vorið fram undan. „Við þurfum bara að bíta á jaxlinn með þetta og berja þetta af okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Akureyringur dæmdur fyrir viðbjóðslega framkomu í garð dóttur sinnar – „Mamma þín hefði átt að missa þig í gólfið í fæðingu“

Akureyringur dæmdur fyrir viðbjóðslega framkomu í garð dóttur sinnar – „Mamma þín hefði átt að missa þig í gólfið í fæðingu“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sænsk kona í vanda eftir handtöku í Leifsstöð

Sænsk kona í vanda eftir handtöku í Leifsstöð
Fréttir
Í gær

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“

Hrinan getur hæglega endað með gosi – „Augljóst að það er eitthvað að gerast“
Fréttir
Í gær

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni

Biðjast afsökunar – Foreldrar ekki látnir vita af óviðeigandi framkomu leikskólastarfsmanns gegn barni
Fréttir
Í gær

Verulega ósátt við „lítillækkandi orðræðu“ Diljár Mistar – „Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið“

Verulega ósátt við „lítillækkandi orðræðu“ Diljár Mistar – „Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur ómyrkur í máli: „Hætt við að við séum að sigla inn í alvarlega stöðu“

Vilhjálmur ómyrkur í máli: „Hætt við að við séum að sigla inn í alvarlega stöðu“