fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. mars 2026 19:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjar vendingar hafa orðið í stóra páskaeggjamálinu. Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, greinir frá tíðindunum á Facebook.

Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með þá var greint frá því um helgina að starfsmenn Landspítalans fengju engin páskaegg frá spítalanum í ár vegna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnarinnar. Mörgum hefur sárnað þessi ákvörðun enda liggur fyrir það sama gildir ekki um alla aðra ríkisstarfsmenn, svo sem um starfsmenn ráðuneytanna sem fá páskaegg að venju.

Ragnar Freyr fékk rétt í þessu símtal og segist nú brosa allan hringinn. Ljúft fólk hjá Góu og Omnom hefur boðist til að leysa Páskaeggjahallærið.

„Ég fékk ákaflega skemmtilegt símtal rétt í þessu og brosi allan hringinn.

Ræddi við ljúfa fólkið hjá Góu og Omnom sem sögðu mér að þau væru tilbúin í að leysa Páskaeggjahallærið þetta árið.

Ég á því stefnumót snemma í fyrramálið (ef veður leyfir) og reyni að leggja mitt af mörkum því þau ætla að framleiða sérstaklega fyrir starfsfólk spítalans því lagerinn er tómur og framleiðslu hætt þetta árið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Margrét bendir á einfalda aðgerð til að létta byrðar íslenskra heimila

Margrét bendir á einfalda aðgerð til að létta byrðar íslenskra heimila
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Lýsir ofbeldi sem hún var beitt á fósturheimili – „Þú mátt ekki eyðileggja mannslíf svona og komast upp með það“

Lýsir ofbeldi sem hún var beitt á fósturheimili – „Þú mátt ekki eyðileggja mannslíf svona og komast upp með það“
Fréttir
Í gær

Nágranni fékk nóg og hringdi á lögreglu vegna heimilisofbeldis í næstu íbúð

Nágranni fékk nóg og hringdi á lögreglu vegna heimilisofbeldis í næstu íbúð
Fréttir
Í gær

Kolbrún bendir á ójafna stöðu barna – „Hvernig stendur á því að við höfum leyft þessari mismunun að þrífast?”

Kolbrún bendir á ójafna stöðu barna – „Hvernig stendur á því að við höfum leyft þessari mismunun að þrífast?”
Fréttir
Í gær

Fimmtán umdeildir Yutong vagnar í íslenska Strætóflotanum – Ótti við fjarstýringu frá Kína

Fimmtán umdeildir Yutong vagnar í íslenska Strætóflotanum – Ótti við fjarstýringu frá Kína
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði