fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fréttir

Brak úr Villi Birni líklega komið í ljós – Feðgum bjargað eftir að báturinn hvolfdi

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. mars 2026 13:30

Brakið líkist Villi Birni óneitanlega. Myndir/Skjáskot/Facebook/Rannsóknarnefnd samgönguslysa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo virðist sem brak úr bát sem sökk á Breiðafirði árið 2022 sé komið í ljós. Ekki var hægt að rannsaka slysið til fullnustu á sínum tíma vegna þess að báturinn lá á hafsbotni.

Handfæraveiðabáturinn Villi-Björn SH 148 var á veiðum á hinum svokallaða Fláka á Breiðafirði þann 13. júlí árið 2022 þegar honum hvolfdi. Feðgum var bjargað úr bátnum en sonurinn var of ungur til þess að mega vera við veiðar.

Eins og segir í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa voru feðgarnir búnir að veiða 400 kíló af þorski þegar þeir urðu varir við viðvörun frá vélarrúmi. Báturinn var farþegabátur sem búið var að breyta í veiðibát.

Slagsíða var kominn á bátinn og sjór inn í vélarrúmið. Á sama tíma kom alda og flæddi sjór yfir lunningu og hvolfdi bátnum á örstuttum tíma. Feðgarnir náðu ekki að komast í björgunarbúninga en náðu að senda neyðarkall. Kallið kom sem betur fer á besta tíma, enda margir bátar í kring. Sex mínútum eftir kallið var þeim bjarga um borð í bátinn Hvítá.

Sonurinn of ungur

„Skipstjóri var lögskráður á skipið en hinn skipverjinn ekki þar sem hann uppfyllti ekki ákvæði laga um lágmarksaldur skipverja,“ segir í skýrslunni. Ekki hafi verið hægt að álykta í málinu þar sem báturinn væri á hafsbotni.

Nú virðist sem brak úr bátnum sé komi í ljós. En sjómenn sem voru á veiðum ofarlega í Látragrunni fengu brakið í netin og birtu myndir af því á Facebook grúbbunni „Sokkin skip við Ísland.“

Eins og sést á myndinni var um að ræða hvítan bát með mynd af háhyrningi. Alveg eins og á Villi Birni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026

Þetta eru 10 fallegustu staðir heims til að skoða árið 2026
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“

Erlend kona í greipum kærasta síns á Íslandi og kemst ekki heim – „Hann sannfærði mig um að halda barninu“
Fréttir
Í gær

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði

Guðmundur ekki sáttur: „Einfaldlega til skammar“ – Á ekki að vera lúxus fyrir útvalda að komast á skíði
Fréttir
Í gær

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt

Málarameistari í atvinnurekstrarbann eftir að hafa „kerfisbundið tæmt“ fyrirtæki sitt