fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fréttir

Kolbrún bendir á ójafna stöðu barna – „Hvernig stendur á því að við höfum leyft þessari mismunun að þrífast?”

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef við tökum jöfnuð í menntakerfinu alvarlega verðum við að horfast í augu við þetta misræmi og bregðast við því,“ segir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Kolbrún fer fyrir starfi stýrihóps sem mennta- barnamálaráðherra skipaði til að móta stefnu og aðgerðir til að takast á við fátækt barna. Í þeirri vinnu segir Kolbrún að hópurinn hafi rekist á dæmi um verulega mismunun varðandi kostnað sem fellur á fjölskyldur vegna þátttöku barna í skólasamfélaginu.

„Kostnaður sem tengist ekki beint kjarna námsins, heldur félagslegri þátttöku, sem er órjúfanlegur hluti af skólagöngu barna.“

Kolbrún bendir í grein sinni á að grunnskólinn eigi og geti verið eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Skólinn eigi að tryggja að öll börn hafi jafna stöðu, aðgang og möguleika, óháð efnahag foreldra/forráðamanna, bakgrunni eða búsetu.

„Það er bæði lagaleg og ekki síður siðferðisleg skylda skólanna og okkar að sjá um að svo verði,“ segir hún.

Nefnir dæmi

Kolbrún tekur dæmi um hvernig þessi mismunun birtist.

„Í sumum skólum eru skólaferðir að fullu greiddar af skólanum, meðal annars vegna tilmæla fræðslustjóra. Í þeim skólum hefur þátttaka aukist og allir nemendur geta verið með. Í öðrum skólum eru dæmi um tuga þúsunda kostnað foreldra, sem greiða tæpar fimmtíu þúsund krónur fyrir skólabúðir, auk kostnaðar vegna árshátíða, skóladansleikja, bekkjarkvölda og jafnvel til kaupa á sérmerktum skólapeysum.“

Kolbrún segir að dæmi sýni einnig að börn séu sum staðar hvött til að taka þátt í fjáröflunum, með sölu á kökum eða með vinnu við viðburði til að geta tekið þátt í eigin skólagöngu.

„Þótt slík þátttaka geti verið jákvæð og lærdómsrík má hún aldrei verða forsenda þess að barn fái að taka þátt í félagsstarfi innan skólans.“

Kolbrún nefnir síðan að í sumum sveitarfélögum og skólum sé boðið upp á úrræði fyrir einstaka nemendur, til dæmis með stuðningi frá mikilvægum sjóðum eins og Hróa hetti.

„Flestir skólastjórnendur og kennarar eru meðvitaðir um þessa mismunun og fara ýmsar leiðir til að tryggja að börn frá tekjuminni heimilum geti tekið þátt í skólasamfélaginu. En það leysir ekki kerfisbundinn vanda. Spurningin sem við verðum að svara er einföld: Hvernig stendur á því að við höfum leyft þessari mismunun að þrífast?“

Vettvangur jafnaðar, ekki mismununar

Hún spyr enn fremur hvers vegna það sé háð búsetu eða skóla hvort barn geti tekið þátt í skólaferð, árshátíð eða öðru félagsstarfi skólans án fjárhagslegs álags á fjölskylduna.

„Þetta er ekki smávægilegt atriði. Þátttaka í skólasamfélagi er lykilþáttur í félagsfærni, sjálfsmynd og tengslamyndun barna. Í grunnskólanum verða til minningar sem fylgja börnunum alla ævi og þær minningar geta verið neikvæðar ef reynsla barna er að hafa staðið utanveltu.“

Það er mat Kolbrúnar að ef við tökum jöfnuð í menntakerfinu alvarlega verði að horfast í augu við þetta og bregðast við því.

„Það þarf skýrari stefnu, eftirfylgni og samræmi í framkvæmd og ábyrgð á því að kostnaður sem tengist nauðsynlegri þátttöku í skólasamfélaginu falli ekki á foreldra. Grunnskólinn á að vera vettvangur jafnaðar, ekki mismununar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Donald Trump færir heiminum góðar fréttir – Er lausn í sjónmáli?

Donald Trump færir heiminum góðar fréttir – Er lausn í sjónmáli?
Fréttir
Í gær

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum

Svanur segir andstæðinga dánaraðstoðar auka á þjáningu og svipta fólk reisn – Fólk hafi svelt sig í rúmum sínum
Fréttir
Í gær

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“

„Ég endurtek og spyr, „ertu að segja mér að þú sért sakaður um tilraun til nauðgunar?“ – „Já“ segir hann“
Fréttir
Í gær

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin

Tveimur þjófum vísað úr landi – Mega ekki koma aftur næstu árin