fbpx
Miðvikudagur 24.september 2025
Fréttir

Lá í blóði sínu á hjólastíg og hjálmurinn mölbrotinn – „Hættulegustu farartækin í umferðinni“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 24. september 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Hauksdóttir lögmaður hvetur til þess að þingmenn allra flokka sameinist um það markmið að setja nothæfar reglur um rafskútur og rafskútuleigur. Þessi hvatning kemur ekki til af ástæðulausu enda segir Eva að rafskútur séu sennilega hættulegustu farartækin í umferðinni.

Hún skrifar grein um málið á vef Vísis þar sem hún lýsir óhugnanlegu atviki sem átti sér stað síðasta vor þegar vegfarendur gengu fram á hjólreiðamann sem lá í blóði sínu á hjólastíg.

„Reiðhjólið hans lá rétt hjá, hjálmurinn brotinn, maðurinn illa áttaður. Ekkert ljós logaði á nokkrum ljósastaurum við stíginn en undir næsta dimma ljósastaur lá rafskúta.“

Eva segir að hringt hafi verið á neyðarlínuna og skömmu síðar hafi sjúkrabíll komið og flutt hjólreiðamanninn á gjörgæsludeild Landspítalans.

„Tjónið var töluvert. Skítt með hjálminn, fatnaðinn og gleraugun. Verra mál að hann var með mikla áverka; sprungið milta, skurði og mörg beinbrot, m.a. sprungur í andlitsbeinum. Hann væri líklega ekki á meðal okkar ef hann hefði ekki fundist svo fljótt eftir byltuna,“ segir Eva í greininni.

Hver ber ábyrgðina?

Hún spyr svo hver ber ábyrgð á því að aðskotahlutur sé skilinn eftir á hjólastíg undir myrkvuðum ljósastaur með tilheyrandi slysahættu.

„Tryggingafélag rafskútuleigunnar hafnar bótaskyldu. Ber því við að notendur þurfi að staðfesta að þeir hafi lesið notkunarskilmála sem feli í sér reglur um hvernig eigi að leggja tækjunum og að fyrirtækið beri ekki ábyrgð á því að slökkt var á ljósastaurum. Auðvitað hefur enginn sagt að rafskútuleigan beri ábyrgð á bilun í ljósastaur. Sá sem skilur aðskotahlut eftir í myrkri ber ekki ábyrgð á myrkrinu heldur því hvernig hann hegðar sér við þær aðstæður. Spurningin er hinsvegar hvort rafskútuleigan beri einhverja ábyrgð á hegðun notenda, t.d. því hvar og hvernig tækin sem hún leigir út eru skilin eftir. Er nóg að setja fram notendaskilmála en gera ekkert til að fylgja þeim eftir eða grípa til aðgerða til að afstýra slysum þegar skilmálarnir eru ekki virtir?“

Eva segir í grein sinni að það hefði verið hægt að láta reyna á ábyrgð rafskútuleigunnar fyrir dómi ef lögreglan hefði sinnt starfi sínu af sæmilegu viti.

„En það er ekki nóg með að eina myndin sem tekin var á staðnum sé tekin úr svo mikilli fjarlægð að það er illmögulegt að sanna frá hvaða leigu rafskútan er, heldur ritaði lögreglan líka nafn rangrar rafskútuleigu í skýrsluna. Með slíka sönnunarstöðu væri lítið vit í að höfða dómsmál gegn rafskútuleigunni og útilokað að finna notandann sem gekk frá skútunni,“ segir Eva og heldur áfram:

„Rafskútur eru sennilega hættulegustu farartækin í umferðinni. Þær eru fyrirferðarlitlar og geta náð töluverðum hraða en engar kröfur eru gerðar um hæfni notenda. Engin ökutæki valda annarri eins slysahættu kyrrstæð. Notendaskilmálar virðast ekki þjóna þeim tilgangi að draga úr slysahættu en það kemur í sjálfu sér ekki á óvart þegar það hefur engar afleiðingar að brjóta þá. Á höfuðborgarsvæðinu eru hjól frá rafskútuleigum úti um allt, ýmist standandi eða liggjandi á miðjum gangstéttum og hjólastígum, í innkeyrslum, við bílastæði, í tröppum og utan í girðingum. Á Facebook er hópur sem heitir „Verst lagða rafskútan“ þar sem birtar eru myndir af skútum sem taldar eru valda slysahættu eða óþægindum fyrir vegfarendur.“

Fréttir af fleiri slysum kæmu ekki á óvart

Eva segir að rafskútum muni sennilega fjölga á Íslandi á næstu árum enda hentug og skemmtileg farartæki, sérstaklega í góðu veðri. Nú þegar orðið er dimmt á kvöldin en veður samt með ágætum, eins og hefur verið stóran hluta septembermánaðar, stöðvar myrkrið fólk ekki í að nota rafskútur eða skilja þær eftir þar sem þær hindra aðgengi.

„Fleiri slys af völdum þessara tækja kæmu ekkert sérstaklega á óvart og síst á þessum árstíma. Áður en til þess kemur vona ég þingmenn allra flokka sameinist um það markmið að setja nothæfar reglur um rafskútur og rafskútuleigur. Slysavarnir eru ekki flokkspólitískt mál og þarf ekki einu sinni að deila um þörfina á skýrari reglum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Þungur dómur féll í héraðsdómi í bíræfnu smyglmáli

Þungur dómur féll í héraðsdómi í bíræfnu smyglmáli
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vendingar í máli ungu grænlensku móðurinnar – „Hjarta mitt er heilt á ný“

Vendingar í máli ungu grænlensku móðurinnar – „Hjarta mitt er heilt á ný“
Fréttir
Í gær

Höfrungar nota kúlufiska til að komast í vímu

Höfrungar nota kúlufiska til að komast í vímu
Fréttir
Í gær

Jimmy Kimmell aftur á dagskrá hjá ABC

Jimmy Kimmell aftur á dagskrá hjá ABC
Fréttir
Í gær

Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum gagnrýnd fyrir áform um að tengja parasetamól við einhverfu

Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum gagnrýnd fyrir áform um að tengja parasetamól við einhverfu
Fréttir
Í gær

Mölvaði rúðu í lögreglubíl með hausnum

Mölvaði rúðu í lögreglubíl með hausnum
Fréttir
Í gær

Borga sömu iðgjöldin en fá ekki það sama til baka – „Munurinn 83-116 þúsund kr. á mánuði“

Borga sömu iðgjöldin en fá ekki það sama til baka – „Munurinn 83-116 þúsund kr. á mánuði“
Fréttir
Í gær

Ekkja Kirk boðaði fyrirgefningu en Trump var ekki á sama máli – „Ég hata andstæðinga mína“

Ekkja Kirk boðaði fyrirgefningu en Trump var ekki á sama máli – „Ég hata andstæðinga mína“