fbpx
Mánudagur 22.september 2025
Fréttir

Sighvatur og eiginkona hans borguðu 240 þúsund krónur fyrir bólusetningu hér á landi – Kostar ekkert á Kýpur

Ritstjórn DV
Mánudaginn 22. september 2025 08:00

Sighvatur Björgvinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, segir að hann og eiginkona hans hafi þurft að greiða hundruð þúsunda fyrir bólusetningu gegn svokölluðum ristli hér á landi. Þessi sama bólusetning var aftur á móti ókeypis hjá heimilislækni dóttur þeirra sem býr á Kýpur.

Sighvatur skrifaði pistil um málið sem birtist á vef Vísis í gærkvöldi, en tilefnið skrifanna er frétt RÚV á laugardag um nýja rannsókn sem sýndi að bólusetning gegn ristli geti minnkað áhættu á heilabilun. Ristill myndast þegar hlaupabóluveira sem legið hefur í dvala vaknar til lífsins en hægt er að verjast sjúkdómnum með bólusetningu sem er í boði víða.

Í umfjöllun RÚV kom fram að þeir landsmenn sem telja sig hafa þörf fyrir bólusetningu gegn ristli geti fengið hana með því að bera kostnaðinn sjálfir. Kostnaður við einn skammt nemur 60 þúsund krónum en sérhver einstaklingur þurfi alltaf tvær slíkar bólusetningar með ákveðnu millibili. Er kostnaður fyrir hjón því 240 þúsund krónur.

Dóttir hans veiktist mikið

Í pistil sínum segir Sighvatur frá því þegar dóttir hans, sem búið hefur í áratugi með fjölskyldu sinni á Kýpur, heimsótti Ísland fyrir rúmum þremur árum. Hún veiktist í ferðinni og leitaði til læknis sem greindi hana með ristil.

„Hún fékk bráðabirgðarlyf hér en fór veik heim til Kýpur þar sem læknar tóku við henni. Læknarnir þar sinntu henni vel, gerðu m.a. aðgerðir á andliti sem stöfuðu af virkni veitunnar. Var hún lengi að ná sér,“ segir hann og bætir við að heimilislæknir hennar á Kýpur hafi spurt hana hvort eiginmaður hennar væri á sextugsaldri.

„Þegar hún játti því bað heimilislæknirinn hana um að senda eiginmanninn til sín strax til þess að fá bólusetningu gegn ristilveirunni. Það gerði hún og bólusetningin fékkst – og var ókeypis. Þau hjónin sögðu mér og konu minni frá þessu og lögðu til að við fengjum sams konar bólusetningu til þess að verjast veikindum, sem við hefðum getað fengið vegna veikinda hennar þegar hún dvaldi með okkur. Því ráði ákváðum við að fylgja,“ segir Sighvatur sem rifjar upp að þá hafi þau komið að lokuðum dyrum.

Komið að lokuðum dyrum hér á landi

„Sumar heilsugæslustöðvar könnuðust við slíkar bólusetningar, en buðu þær ekki. Þegar við leituðum upplýsinga um hvort veikindin ristill væru þekkt hérna var svarið: Nei. Vitað væri um fólk, sem hefði veikst illa og líka um fólk, sem hefði dáið. Sjúkdómurinn væri ekki óalgengur. Þegar ég hafði talað við sjúkratryggingar var svarið slíkt hið sama. Veikindin væru þekkt. Þau væru líka þekkt á Íslandi og gætu haft alvarlegar afleiðingar. Sjúkratryggingar bæru hins vegar engan kostnað af bólusetningarlyfinu,“ segir Sighvatur í pistlinum og segist hann í kjölfarið hafa spurt hvað hann gæti þá gert.

„Svarið var einfalt. Þekkir þú ekki einhvern starfandi lyfjafræðing? Gerir þú það, þá skaltu biðja hann um að panta fyrir þig lyfið. En þú þarft að greiða það sjálfur. Fyrir bæði þig og konu þína. Þá ráðleggingu þáði ég og fékk umbeðið bólusetningarefni sent í lyfjaverslun, þar sem ég leysti það út. Við hjónin fengum svo bólusetninguna hjá lækni – og heilsast vel. Borguðum fyrir lyfið sen samsvarar 240 þús. kr. á núgildandi verðlagi samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðherra í kvöldfréttunum á laugardag. Ekkert var greitt fyrir aðstoð læknisins.“

Einfalt svar

Sighvatur segist hafa kynnt sér málið nánar í kjölfarið og fengið margar frásagnir af því hvernig eldra fólk hefði veikst af þessum sjúkdómi, fengið kvalafulla sýkingu og sumir dáið.

„Nú segir ráðherrann okkur, að verið sé að skoða hvort umrætt bólusetingalyf hafi ásættanlegt erindi og sé það niðurstaðan verði málið betur skoðað í ráðuneytinu. Í almennum heilsufarsupplýsingum um heilsufarsmál Í Bandaríkjunum sem má fá með einföldum hætti með því að fletta upp í tölvunni er skýrt og skilmerkilega frá því sagt, að öllum Bandaríkjamönnum 60 ára og eldri sé eindregið ráðlagt að fá bólusetningu gegn ristli eins og við fengum – nákvæmlega eins og sagt er á Kýpur. Hvort Bandaríkjamenn fá bóluefnið án sérstaks kostnaðar – eins og á Kýpur – eða fyrir 240 þús. kr á hjón – eins og á Íslandi – veit ég ekki.“

Sighvatur segir að lokum að honum hafi þótt merkilegt að á Kýpur, þar sem læknishjálp var nánast ekki í boði fyrir 10-12 árum nema sjúklingur borgaði nánast allt sjálfur, sé komin sambærileg heilsugæsla og hann ólst upp við hér á landi. Heilsugæsla sem ekki er lengur til á Íslandi.

„Þegar ég spurði: Hvers vegna breyttist þetta svona á Kýputr? Fékk ég einfalt svar: Við gengum í Evrópusambandið. Þá var þessu breytt!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur sagður hafa myrt konu á sjötugsaldri í Stokkhólmi

Íslendingur sagður hafa myrt konu á sjötugsaldri í Stokkhólmi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Palestínsk kona á Íslandi krefst lögskilnaðar frá eiginmanni sínum

Palestínsk kona á Íslandi krefst lögskilnaðar frá eiginmanni sínum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áratuga aðgerðaleysi borgarinnar bjargaði bakhúsi sem reist var í óleyfi

Áratuga aðgerðaleysi borgarinnar bjargaði bakhúsi sem reist var í óleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að þessum manni

Lögreglan leitar að þessum manni