fbpx
Föstudagur 19.september 2025
Fréttir

Vegglistaverk í miðbænum eyðilagt – „Hafi þeir eintóma skömm fyrir“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 19. september 2025 09:30

Svona leit vegglistaverkið út áður en það var eyðilagt. Mynd: Skjáskot ja.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Illugi Jökulsson rithöfundur vekur athygli á skemmdarverki sem unnin hafa verið á vegglistaverki í miðbænum og segir hannað þeir sem ábyrgð bera ættu að skammast sín fyrir.

Í mörg herrans ár hefur verið svolítið málverk á vegg gamla Hans Petersens-hússins við Skólastræti, þar sem það blasir við fólki á leið um Bankastræti. Þetta var snoturt lítið verk sem á stóð Days of Gray og maður leit hlýlega til þess á leið eftir Skólastrætinu eða upp Bankastrætið.

Um er að ræða húsið að Bankastræti 4, sem er á horni götunnar og Skólastrætis.

Fyrir mörgum árum bættist lítið rautt hjarta í miðju verksins, áreiðanlega ekki málað af höfundinum og mér fannst það fyrst einfeldningslegt og dálítið hallærislegt og allt öðruvísi en verkið sjálft. En svo reyndist þessi viðbót einhvern veginn hæfa verkinu svo vel og nú í áratug eða svo hefur hið káta rauða hjarta oná blámanum og grámanum verið örlítið ánægjuefni á hverri gönguferð þar framhjá. Og öðru fólki hefur bersýnilega þótt það líka því fjöldi manns hefur tekið af sér mynd við þetta litla snotra listaverk á þessum óvænta stað. En nú hafa einhverjir sem merkja sig Oaths og Evil Music séð tilgang í að eyðileggja þessa litla meinlausa verk og hafi þeir eintóma skömm fyrir.

Birtir Illugi í færslu sinni á Facebook með mynd af verkinu eins og það er nú skemmt.

Mynd: Facebook.
Svona leit vegglistaverkið út áður en það var eyðilagt. Mynd: Skjáskot ja.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Varað við svikahröppum sem þykjast vera heyrnarlausir

Varað við svikahröppum sem þykjast vera heyrnarlausir
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hörður endurvekur Macland – „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg“

Hörður endurvekur Macland – „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg“
Fréttir
Í gær

Hægri öfgamenn bera ábyrgð á langflestum pólitískum morðum – Allar rannsóknir á einn veg

Hægri öfgamenn bera ábyrgð á langflestum pólitískum morðum – Allar rannsóknir á einn veg
Fréttir
Í gær

Birtir mynd af frægasta glugga Íslands – Bærinn vill láta taka uppstillinguna niður

Birtir mynd af frægasta glugga Íslands – Bærinn vill láta taka uppstillinguna niður
Fréttir
Í gær

Sæþór segir að Sanna sé ekki vinsæl innan Sósíalistaflokksins – „Ekki hægt að hafa fulltrúa sem vinnur ekki með flokknum“

Sæþór segir að Sanna sé ekki vinsæl innan Sósíalistaflokksins – „Ekki hægt að hafa fulltrúa sem vinnur ekki með flokknum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu fyrir að árita reikninga án þess að vera löggiltur endurskoðandi

Ríkisendurskoðandi tilkynntur til lögreglu fyrir að árita reikninga án þess að vera löggiltur endurskoðandi