Tæplega fertugur maður varð fyrir hrottalegri og ofsafenginni árás á heimili sínu í Þorlákshöfn á fimmtudagskvöld. Tilefni árásarinnar var það eitt, að sögn móður mannsins, að hann bað gestkomandi um að fara vegna þess að hann þyrfti að fara snenma að sofa því hann ætlaði að hjálpa vinafólki sínu á Eyrarbakka morguninn eftir og þyrfti að vakna snemma.
Móðir mannsins heyrði fyrst um árásina í stuttri útvarpsfrétt á föstudaginn. Þar kom fram að snákur hefði verið haldlagður vegna málsins og þar sem konan þekkir til snáks í eigu sonar síns áttaði hún sig á því að þetta gæti varla verið einhver annar. „Klukkan tíu eða ellefu á föstudagsmorguninn, þá var ég að hlusta á útvarpið. Ég vissi að þetta var hann þegar minnst var á snákinn,“ segir hún í viðtali við DV. Hún þekkir enda vel til snáksins: „Þetta er falleg lítil slanga, meinlaus.“
Í frétt mbl.is um málið á föstudag segir:
„Einn er í haldi lögreglunnar á Suðurlandi eftir líkamsárás í Þorlákshöfn í nótt. Í aðgerð lögreglunnar var snákur gerður upptækur á vettvangi og var honum komið til eyðingar í samstarfi við dýralækni.
Að sögn Garðars Más Garðarssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi, var um alvarlega líkamsárás að ræða en fórnarlambið er þó ekki í lífshættu. Hann segir að málið sé til rannsóknar og gistir árásarmaðurinn í fangageymslu.“
Að sögn móður árásarþolans var manninum sleppt eftir skýrslutöku á föstudag. Hún segir hann hins vegar hafa verið handtekinn aftur á Selfossi um kvöldið vegna óspekta þar.
„Hann kom þarna til hans í heimsókn og þeir voru að drekka bjór. Svo vildi sonur minn að maðurinn færi því hann þurfti að vakna snemma morguninn eftir og fara til Eyrarbakka að hjálpa vinafólki sínu. Maðurinn vildi ekki fara og þegar sonur minn sneri frá honum tók maðurinn hann hálstaki þannig að hann hálfmissti meðvitund, eða lyppaðist niður. Síðan tók maðurinn sjónvarpið og henti því í höfuðið á honum. Stappaði síðan á honum og sparkaði í hann. Niðurstaðan er sú að sonur minn er með annað kinnbeinið brotið, er nefbrotinn, fingurbrotinn og rosalega marinn í andliti. Hann gat ekki opnað annað augað fyrr en seinni partinn í gær,“ segir móðirin.
Konan segir að maðurinn hafi verið handtekinn skömmu síðar en hún áttar sig ekki á því hver gæti hafa hringt á lögregluna því ekki hafi sonur hennar verið í neinu ástandi til þess.
„Maðurinn fór af vettvangi og sparkaði í einhverja bíla í nágrenninu. Síðan handtók lögregla hann og þá brá svo við að hann sagðist sjálfur hafa orðið fyrir líkamsárás og vildi þá meina að sonur minn hefði ráðist á hann. Lögreglan fór þá með hann að heimili sonar míns og ætlaði að handtaka son minn. Þeim brá þegar hann kom til dyra og þeir sáu hvað hann var slasaður. Þeir handtóku árásarmanninn og hringdu á sjúkrabíl sem flutti son minn á bráðamóttökuna á Selfossi.“
Mennirnir tveir eru báðir á ofanverðum fertugsaldri. Móðirin segir að sonur hennar gæti þurft að fara í tvær aðgerðir, á fingri og nefi. Fer hann í skoðun á Borgarspítalanum á fimmtudag. Aðspurð hvort hann þurfi mögulega að glíma við varanlegar afleiðingar af höfuðáverka segir hún:
„Maður vonar að hann hafi sloppið. En fólk er enn í hálfgerðu áfalli eins og þú getur ímyndað þér og hann er dasaður.“
Hún segir málinu engan veginn lokið:
„Þetta er ekki búið, hann kærir þetta auðvitað því það er ekki hægt að koma mönnum upp á svona.“