Þetta segir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, í aðsendri grein á vef Vísis. Þar veltir hún fyrir stöðunni á fasteignamarkaðnum og litlu framboði af minni og ódýrari eignum – þá sérstaklega eignum sem verið er að byggja.
„Hvers vegna kemur varla nokkur ný eign á markaðinn í dag án fataherbergis, innbyggðs vínkælis, gufubaðs eða regnskógar sturtu? Þetta er allt lúxus útbúnaður sem ég gæti vel hugsað mér að njóta en hef enga þörf á. Er þetta raunverulega það sem markaðurinn vill eða snýst þetta fyrst og fremst um að hámarka verð þess reitar sem þú hefur til að byggja á?“
Jóhann segir það gefa auga leið að sá sem byggir geri sitt til að hámarka arðinn af sinni framkvæmd. Sá eini sem geti haft áhrif á það sé sá sem hann á í samningum við hverju sinni.
„Þegar við lítum til Reykjavíkur sjáum við að uppbygging hefur verið töluverð en nýjar eignir í borginni eru ekki að seljast hratt, þær eru eðli málsins samkvæmt dýrar, enda kröfur sem nýjar eignir bera mögulega ekki það sem við kaupendur leitum að,“ segir hún og veltir fyrir sér hvað það er sem fólk þarf að hafa á heimili.
„Svefnherbergi fyrir alla fjölskyldumeðlimi, baðherbergi, eldhús og stofu.“
Jóhanna ólst sjálf upp í Bakkahverfi í Breiðholti og bendir hún á að þar sé ágætis samsetning af ólíkum eignum. „Slíkar eignir eða nýjar eignir af þeim toga myndu vera til þess fallnar að fjölga valkostum fólks,“ segir hún og nefnir að þannig gætu þau sem vilja – og geta – gert vel sig í húsbúnaði en líka þau sem vilja einfaldari og ódýrari eign.
„Uppbygging fjölbreyttari eigna hagnast öllum. Þannig myndi meðalverð hvers fermetra lækka og þar með fasteignaverð. Sem hefur svo bein áhrif á vexti og verðbólgu. Hvar getum við byggt heimili sem eru minna Bo Bedre [en] meira bara grunnheimili án alls auka gúrme?“
Jóhanna bendir á að borgin eigi drjúgan hluta lands við Ártúnshöfða sem nú sé að fara í uppbyggingu. Ef borgin gripi inn í með forhönnuð húsnæði til uppbyggingar í anda hinnar svokölluðu bakkamenningar, væri það stórt skref í mótun verðlags. Það hefði áhrif á fasteignamarkaðinn í heild, verðbólgu og þar með lífsgæði okkar allra.
Jóhanna segir að lokum að Viðreisn muni leggja fram tillögu á næsta borgarstjórnarfundi um að þessi skref verði tekin sem hluti af uppbyggingaráformum borgarinnar. Hér beri borgin ábyrgð og setja þurfi stefnu sem stuðlar að betra samfélagi fyrir alla.
„Með þessu getum við stórbætt húsnæðisástandið og á sama tíma haft áhrif á verðmyndun á fasteignamarkaði, verðbólgu og lífsgæði fjölda borgarbúa.“