Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, er ánægður með breytingarnar sem hafa orðið á svæðinu við Tollhúsið við Tryggvagötu. Breytingarnar hafi allar verið gagnrýndar harðlega í borgarstjórn en sjálfsagt vilji þeir sem greiddu mótatkvæði nú gleyma því.
„Rölti í bæinn (ok, reyndar aðeins að skreppa á skrifstofuna) í gær en gat ekki stillt mig um að setjast aðeins á nýja Langa-Bekk við Tollhúsið í Tryggvagötu,“ segir Dagur í færslu á samfélagsmiðlum. „Þarna voru áður bílastæði og örmjó gangstétt en nú er komið torg og gufustrókar sem krakkar elska að leika sér í. Hið dásamlega verk Gerðar nýtur sín sem aldrei fyrr.“
Þá nefnir hann að svæðið í kringum Bæjarins bezta hafi einnig tekið stakkaskiptum og að „straujárnið“ þar sem Hafnarstræti og Tryggvagata sé gull, iðandi mannlíf allt árið.
„Hornið og veitingastaðir eru búnir að fikra sig út og þótt við borgarbúar séum enn þá að læra að nýta og njóta þessara nýju borgarrýma þá er þetta frábær viðbót við miðborgina,“ segir hann.
Þetta hafi hins vegar ekki farið athugasemdalaust í gegnum borgarstjórn.
„Að sjálfsögðu var þetta allt harðlega gagnrýnt og greidd mótatkvæði í borgarstjórn en því vilja sjálfsagt allir gleyma,“ segir Dagur að lokum en nefnir að það hafi þó verið algjör sátt um að grafa upp og gera gömlu Steinbryggjunni til góða. Birtir hann nokkrar myndir, frá eldri tíma og framkvæmdatíma.