„Það hlaut að koma að því. Í gær gerðist nokkuð sem við höfum óttast undanfarið, eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun of margra kylfinga. Í gær varð vallarstarfsmaður fyrir bolta eftir högg kylfings sem mátti vel vita að hann væri að setja tvo starfsmenn í hættu. Varla hefði þurft að bíða lengur en í um fimm sekúndur til að gæta viðunandi öryggis,“ segir Edwin í færslunni.
Hann bætir við að flest bendi til þess að boltinn hafi lent á starfsmanninum án viðkomu í jörðu og þar af leiðandi hafi höggið verið þungt. Aðeins hafi munað fáeinum sentímetrum að boltinn hafnaði á höfði viðkomandi.
„Ekkert viðvörunarhróp heyrðist og engin tilraun var gerð til að kanna eða spyrja um ástand starfsmannsins,“ segir hann.
Edwin segir að aðstæður á vellinum í sumar séu um margt sérstakar. Hópurinn sem vinnur á vellinum sé undirmannaður til að skapa svigrúm fyrir stórar fjárfestingar í sjálfvirkum sláttuvélum á sólarorku. Þá hafi viðhaldsþörf aukist tímabundið vegna átaks í endurræktun brauta með mikilli grassprettu. Bendir hann á að vallarstarfsmenn, aðrir en vallarstjóri sem sinnir einnig öðrum störfum, séu aðeins fjórir og enginn eldri en 17 ára.
„Ekkert þeirra hafði unnið á golfvelli fyrr en nú snemmsumars og eru þau að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Þau byrja kl. 7 á morgnana, hafa oft unnið langa daga, í öllum veðrum, og hafa farið langt framúr væntingum. Sú vanvirðing sem þeim er ítrekað sýnd úti á velli er með ólíkindum. Í gær var bolti einnig sleginn inn á flöt sem starfsmaður var að slá. Það hefur gerst áður og bolti m.a.s. farið í vél sem starfsmaður ók, svo lán varð að ekki varð líkamstjón og sláttuvalsar skemmdust lítið sem ekkert.“
Edwin nefnir fleiri dæmi í færslu sinni en tekur fram að það sé rótgróin venja eða viðmið að vallarstarfsmenn eigi réttinn.
„Golfhreyfingin og kylfingar á Íslandi hafa beina hagsmuni af því að gera golfvallaumsjón að aðlaðandi starfi meðal ungs fólks,“ segir hann og bætir við að tækifærin séu til staðar. Lítil nýliðun hafi þó ollið ákveðnum vonbrigðum
„Okkur sárvantar öflugt ungt fólk sem vill veðja á þennan starfsvettvang og hella sér út í fræðin af alvöru, ef við eigum að halda áfram að bæta vellina og standa vörð um hagsmuni golfíþróttarinnar í síbreytilegu samfélagi með harðnandi samkeppni um land, auðlindir og tíma fólks. Með framangreint í huga, en fyrst og fremst með öryggi og velferð starfsfólks í huga, hefur Golfklúbbur Þorlákshafnar ákveðið að hefja vinnu við mótun málsmeðferðar og viðurlaga við háskaleik sem þessum.“