fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
Fréttir

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 14. ágúst 2025 18:30

Mynd: Tripadvisor.com.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Bogi Sveinsson, héraðsskjalavörður hjá Héraðsskjalasafni Austfirðinga og leiðsögumaður, vakti í gær athygli á skemmdarverkum í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum þar sem hann er búsettur. 

Segir Stefán að svo virðist sem skemmdarfýsn hafi ráðið og töluvert afl þurft til, hvimleitt sé að sjá að fólk geti ekki látið sameiginlegar eigur í friði.

Það var hundleiðinleg aðkoma í rjóðrinu í Tjarnargarðinum í kvöld. Það er ekki annað að sjá en að þarna hafi afar einbeitt skemmdarfýsn ráðið för og fjandi hvimleitt að einhverjir skuli ekki geta séð sameiginlegar eigur okkar allra í friði. Er það virkilega svo að foreldrar þarna úti séu algjörlega grandalaus um að synir þeirra gangi hér um og brjóti og bramli (já ég gef mér að þetta séu drengir og ég gef mér að þeir séu lögum samkvæmt á barnsaldri, það þyrfti að segja mér það þrisvar ef um annað er að ræða í tilfelli eins og þessu)?? Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu. Hvernig væri nú að ganga aðeins á strákana um hvað þeir eru að dunda sér á kvöldin?

Með færslu sinni í Facebook-hópnum Íbúar Fljótsdalshéraðs birtir Stefán með myndir.

Mynd: Stefán Bogi Sveinsson
Mynd: Stefán Bogi Sveinsson
Mynd: Stefán Bogi Sveinsson

Tjarnargarðurinn er lítill garður í hjarta Egilsstaða. Kjörinn staður til að njóta verursældarinnar í skjóli trjánna, fara í lautarferð og allskyns leiki eða hreinlega slaka á og lesa bók. Einnig er Frisbee golfvöllur í garðinum sem er kjörin afþreying fyrir alla aldurshópa, eins og segir á vef Austurlands.

Í samtali við DV segir Stefán að ekkert sé að frétta af málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli

Flugdólgur handtekinn á Reykjavíkurflugvelli
Fréttir
Í gær

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir

Fyrstu langtímasamningarnir um liðskiptaaðgerðir og fleiri skurðaðgerðir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leið miklar kvalir í flugvél á Keflavíkurflugvelli en fær ekkert fyrir – „Sjálf lá ég með fætur á gólfinu og höfuð ofan á sæti“

Leið miklar kvalir í flugvél á Keflavíkurflugvelli en fær ekkert fyrir – „Sjálf lá ég með fætur á gólfinu og höfuð ofan á sæti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rakel talar opinskátt um áskoranir sem kennari – Nefnir það sem hún hefur mestar áhyggjur af

Rakel talar opinskátt um áskoranir sem kennari – Nefnir það sem hún hefur mestar áhyggjur af
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stórfelld líkamsárás í Kópavogi í gærkvöldi

Stórfelld líkamsárás í Kópavogi í gærkvöldi