Í alþjóðlegum samanburði er Ísland langt frá því að vera ódýrt land. Þetta vita flestir ferðamenn sem hingað koma. En stundum virðist sem okrið í ferðamannabransanum taki út fyrir allan þjófabálk. Erlendur ferðamaður var sleginn þegar hann sá auglýsta ristaða samloku með skinku og osti á heilar 1.790 krónur í íslensku bakaríi.
„Var að droppa 18 dollurum á samloku með skinku og osti og ég skal segja ykkur það, þetta var ekki aðeins samloka með skinku og osti. Nei, nei. Þetta var meistarastykki í matargerð,“ segir bandarískur ferðamaður í talsverðu háði í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.
Birtir hann einnig mynd af téðum samlokum, sem virðast vera ósköp látlausar. Keypt út í stórmarkaði myndi efnið í eina slíka vafalaust kosta vel innan við 200 krónur.
Og ferðamaðurinn heldur áfram. „Sjáið: Tvær sneiðar af handunnu loftkysstu hvítu brauði, hnoðaðar af munkum í frönsku Ölpunum. Einfalt og pappírsþunnt hvísl af þroskaðri Iberico skinku, eldri en flest mín sambönd. Bráðnuð Gruyére sneið sem var handrifin af englum og flogið inn með einkaþotu. Klárað með úða af truffluolíu því guð forði okkur frá því að nokkuð bragðist eins og hráefnin sem þú pantaðir í raun og veru,“ segir hann. „Borið fram kalt. Af því að verðmiðinn er hið raunverulega bragð. Bon apetit bankareikningurinn minn.“