fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. júní 2025 07:30

Fordow kjarnorkumiðstöðin var meðal skotmarka Bandaríkjamanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er ljóst alvarlegt tjón hlaust af en ekki altjón.“ Þetta sagði Rafel Grossi, forstjóri Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar í samtali við CBS News.

Hann er því ekki eins bjartsýnn og Donald Trump um að tekist hafi að eyðileggja getu Írana til að framleiða kjarnorkuvopn.

Allt frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu risastórum sprengjum, sem grafa sig niður í jörðina áður en þær springa, á kjarnorkumiðstöðvar Írana, hafa efasemdir um áhrif árásanna farið vaxandi.

Donald Trump heldur því fram að allt hafi eyðilagst í árásinni en skýrslur, sem lekið var frá bandarískum leyniþjónustustofnunum, sýna að tjónið var ekki svo mikið.

Bandarísk stjórnvöld segja að kjarnorkuáætlun Írana hafi verið sparkað mörg ár aftur í tímann en aðrir segja að þetta muni aðeins seinka vinnu þeirra um nokkra mánuði.

Grossi hallast að því síðarnefnda. Hann sagði að Íranar hafi getu til að halda áfram og innan nokkurra mánaða geti þeir hugsanlega verið búnir að koma nokkrum skilvindum í gang og byrjað að auðga úran á nýjan leik. „Það er ekki hægt að halda því fram að allt sé horfið og ekkert sé eftir,“ sagði hann.

Hann sagði að ekkert hindri Írana í að halda vinnu sinni áfram í kjarnorkumiðstöðvum sínum með það að markmiði að smíða kjarnorkusprengju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Í gær

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldudeilur á Vestfjörðum – Foreldrar stefndu syni og tengdardóttur og sökuðu þau um misneytingu

Fjölskyldudeilur á Vestfjörðum – Foreldrar stefndu syni og tengdardóttur og sökuðu þau um misneytingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón