Helgidögum í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið hversu margir þeir eru. „Það eru allt of margir helgidagar í Bandaríkjunum þar sem fólk þarf ekki að vinna,“ skrifaði hann fimmtudagskvöldið 19. júní sem var einmitt helgidagur. Þessi dagur er kallaður „Juneteenth“ en þá er endalokum þrælahalds fagnað.
Þennan dag, 1865, reið Gordon Granger, hershöfðingi, inn í bæinn Galveston í Texas og sagði hópi þræla að borgarastyrjöldinni væri lokið og að þeir væru nú frjálsir. Þetta gerðist rúmlega tveimur árum eftir að Abraham Lincoln, þáverandi forseti, skrifaði undir „Emancipation Proclamation“ sem lýsti alla þræla í uppreisnarríkjunum í suðri frjálsa.
Fyrir fjórum árum, 2021, var þessi dagur gerður að helgidegi á landsvísu þegar Joe Biden skrifaði undir lög þar um.
Business Insider segir að lögin hafi verið samþykkt einróma í öldungadeild þingsins.
En Trump, sem hélt ekki upp á „Juneteenth“ á nokkurn hátt að sögn bandarískra fjölmiðla, segir nú að það séu of margir helgidagar.
„Það kostar landið okkar milljarða dollara að öll þessi fyrirtæki eru lokuð,“ skrifaði hann og bætti við: „Starfsfólkið vill þetta heldur ekki!“ en lagði, eins og yfirleitt er venjan hjá honum, ekki fram neinar sannanir eða gögn sem styðja þessi orð hans.
CNN og Business Insider benda á að í kosningabaráttunni 2020 hafi Trump viljað gera „Juneteenth“ að helgidegi. „Gerum Juneteenth að helgidegi á landsvísu,“ skrifaði hann þá pólitískri stefnuyfirlýsingu sinni „Promise to Black America over 4 years“.