Hann sagði að 10.000 rússneskir hermenn reyni að hrekja úkraínska herinn úr héraðinu. Hann sagði að Úkraínumenn séu enn með um 90 ferkílómetra lands á sínu valdi.
Hann ræddi við fréttamenn á sunnudaginn og sagði einnig að úkraínski herinn munu auka „umfang og dýpt“ árása sinna á Rússland. „Auðvitað höldum við áfram,“ sagði hann.
Með innrásinni í Kúrsk tókst Úkraínumönnum að búa til „stuðpúðasvæði“ sem kom í veg fyrir að Rússar gætu sent hermenn til lykilsvæða í austanverðri Úkraínu.
Það fór síðan að halla undan fæti hjá Úkraínumönnum í Kúrsk þegar 11.000 norðurkóreskir hermenn voru sendir til liðs við rússneska herinn í héraðinu.