Slysið varð þegar BMW-fólksbifreið var ekið Eyjafjarðarbraut eystri til norðurs. Um 1.150 metrum norðan við gatnamót Miðbrautar og Eyjafjarðarbrautar eystri fór bifreiðin út af veginum hægra megin, eftir að ökumaður missti stjórn á henni. Þar lenti bifreiðin á afleggjara, kastaðist yfir hann og stöðvaðist utan vegar eftir rúma 50 metra. Ökumaður og farþegi létust af völdum fjöláverka.
Samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi bifreiðarinnar var bifreiðinni ekið hraðast á 201 km/klst fjórum sekúndum fyrir slysið. Hámarkshraði á slysstað var 90 kílómetrar á klukkustund.
Aðstæður til aksturs voru góðar þennan dag, 14 stiga hiti, bjart og sólskin.
Í skýrslu rannsóknarnefndar kemur fram að ökumaður hafi misst stjórn á bifreiðinni skammt norðaustan við bæinn Syðri-Tjarnir í aflíðandi beygju.
„Bifreiðin snerist og lenti með vinstra framhorn á stórgrýti sem var í afleggjaranum ofan við ræsið. Við höggið, sundraðist bifreiðin, tókst á loft og lenti um 36 metra norðnorðaustan afleggjarans og rann síðan um 15 metra þar sem hún stöðvaðist. Brak úr bifreiðinni dreifðist um stórt svæði en vél bifreiðarinnar rifnaði úr henni við áreksturinn og stöðvaðist hún um 54 metrum norðvestur frá árekstrarstaðnum,“ segir í skýrslu nefndarinnar.
Í niðurstöðu nefndarinnar kemur fram að hún hafi áður fjallað um hraðakstur og afleiðingar hans í skýrslum sínum.
„Of hraður akstur hefur verið ein af algengustu ástæðum banaslysa í umferðinni og ítrekar nefndin mikilvægi þess að ökumenn aki ekki hraðar en hámarkshraði og aðstæður leyfa hverju sinni.“