fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Fréttir

Stöð 2 og Vodafone kveðja – Svona verða breytingarnar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. júní 2025 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport munu í dag sameinast undir merki Sýnar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að þessi samruni sé mikilvægur þáttur í því að einfalda ásýnd og vöruframboð Sýnar í anda þeirrar stefnumörkunar sem félagið kynnti á mörkuðum í lok síðasta árs.

Í tilkynningunni eru breytingarnar tíundaðar nánar og þar kemur meðal annars þetta fram:

• „Sýn er nýtt aðalheiti félagsins sem kemur í stað Vodafone og Stöðvar 2. Öll þjónusta fyrirtækisins verður aðgengileg á vefnum syn.is.

• Fjarskiptaþjónusta er hér eftir veitt í nafni Sýnar í nánu samstarfi við Vodafone Group á alþjóðavísu sem tryggir áfram öfluga vöruþróun, innviði og aðgang að alþjóðlegri þekkingu.

• SÝN er nýtt heiti á línulegu sjónvarpsstöðinni Stöð 2. Þar verður áfram hægt að horfa á hágæða sjónvarpsefni, innlent og erlent sem og kvöldfréttir alla daga ársins.

• SÝN+ er nýtt heiti á streymisveitunni Stöð 2+ sem býður upp á fjölda íslenskra og erlendra þáttaraða, vandað talsett barnaefni og gott úrval kvikmynda.

• SÝN Sport er nýtt heiti á Stöð 2 Sport og mun stöðin áfram bjóða upp á besta sætið í heimi íþrótta – og er enski boltinn þar á meðal.

• Fréttastofa Sýnar er nýtt heiti á Fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem heldur áfram að flytja fréttir á Vísi, sjónvarpsstöðinni Sýn og Bylgjunni.“

Þá segir í tilkynningunni að útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 haldi sínum nöfnum óbreyttum eins og fréttamiðillinn Vísir. Vörumerki þeirra verði þó aðlöguð að vörumerkjastefnu Sýnar. Samhliða þessum breytingum kynnir Sýn nýtt og einfaldað vöruframboð sem sameinar fjarskiptaþjónustu, sjónvarpsefni og úrval af íþróttum.

Í tilkynningunni er haft eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, að saga Sýnar sé samofin sögu frumkvöðla sem þorðu að ögra ríkjandi kerfum, afnema einokun og bjóða upp á ferska nálgun í þjónustu við viðskiptavini.

„Frumkvöðlarnir vísa okkur áfram veginn og er Sýn, sameinað vörumerki fjarskipta og fjölmiðla, byggt á þessum grunni. Sameinuð undir einu vörumerki bætum við nýtingu fjármuna, náum auknum slagkrafti og þar með sterkari grundvelli til að bjóða upp á betri þjónustu í harðri samkeppni við alþjóðlega fjarskipta- og fjölmiðlarisa. Við vitum að þau vörumerki sem við leggjum nú á hilluna hafa fylgt þjóðinni lengi og eru henni kær. Viðskiptavinir Sýnar geta áfram treyst á örugg fjarskipti, áreiðanlegar fréttir og framúrskarandi dagskrárgerð á öllum okkar miðlum. Ég hvet landsmenn til að fylgjast með félaginu næstu mánuði því að það er fleira spennandi fram undan hjá Sýn,” segir Herdís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Flugslysið á Indlandi: Telur að allir hafi farist og margir á jörðu niðri

Flugslysið á Indlandi: Telur að allir hafi farist og margir á jörðu niðri
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjölskylda Víglundar fékk einstaka gjöf afhenta

Fjölskylda Víglundar fékk einstaka gjöf afhenta
Fréttir
Í gær

Viktor lést af slysförum á Esjunni

Viktor lést af slysförum á Esjunni
Fréttir
Í gær

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður

Embla Medical hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Ragnar Kjartansson heiðraður
Fréttir
Í gær

Georg hispurslaus og ómyrkur í máli – „Það kostar að búa á þessari eyju“

Georg hispurslaus og ómyrkur í máli – „Það kostar að búa á þessari eyju“
Fréttir
Í gær

Sigurður Fannar játar að hafa banað 10 ára dóttur sinni

Sigurður Fannar játar að hafa banað 10 ára dóttur sinni