Töluverð ólga er út af uppsetningu Tesla hleðslustöðvar í nýjum miðbæ Egilsstaða. Sumir heimamenn tala um stórslys og eru forviða að stöðin hafi verið fyrstu mannvirkin sem rísi í miðbænum sem hefur verið í bígerð í þó nokkurn tíma. Bent er á að hleðslustöðin sé tímabundin.
„Ég verð að segja að bæjaryfirvöld skulda okkur íbúum skýringu og upplýsingagjöf um hvernig í ósköpunum þetta vandræðalega stórslys gat gerst?“ spyr íbúi í færslu í íbúagrúbbu Fljótsdalshéraðs, sem tilheyrir sveitarfélaginu Múlaþingi.
Um er að ræða átta hleðslustöðvar fyrir Tesla bifreiðar og þjónustumannvirki á lóð N1 á Egilsstöðum.
Allt frá árinu 2004 hefur verið stefnt að því að byggja upp nýjan miðbæ á Egilsstöðum. Skipulags og hönnunarvinna stóð yfir allt til ársins 2022 þegar deiliskipulag nýs miðbæjar voru kynnt, það er miðbæjarkjarni sem ber heitið Straumurinn og göngugata sem ber heitið Ormurinn. En í hinum nýja miðbæjarkjarna er gert ráð fyrir 160 nýjum íbúðum.
Lítið hefur gerst í uppbyggingu hins nýja miðbæjar. Bent er á að þar sem hin nýja Tesla stöð er risin átti að vera gróðurprýddur inngangur í göngugötu og reiðhjólaskýli.
„Að öllu gríni slepptu þá er ég algerlega FORVIÐA svo ekki sé meira sagt,“ segir málshefjandi umræðunnar og hendir grín að uppsetningunni. „Heyrst hefur að afhjúpuð verði stytta af mr. Mösk á 17. júní sem verður bænum okkar mikil lyftistöng. Þar gefst tækifæri til að skella í eina sjálfu ýmist til stuðnings kappanum á erfiðum tímum eða bænum okkar til háðungar….hæ hó og jibbí jei … !“
Hefur skapast heilmikil umræða um hina nýju stöð og eru margir íbúar hneykslaðir. Bent er á að tugum ef ekki hundruð milljón króna skattpeningum hafi verið varið í miðbæjarskipulagið. Það líti út fyrir að vera komið í algjört uppnám núna.
„Þetta er algjörlega fàránleg staðsetning á þessum hleðslustöðvum. Það er verið að þrengja enn meira à plássið þarna sem er nú ekki mikið nú þegar !!!! Algjörlega galið !!!!“ segir annar hneykslaður íbúi og fleiri taka í sama streng.
„Þetta er hryllingur,“ segir ein kona. „Þetta helvíti ofan á illa hirta bæinn okkar. mátt panta fyrir mig hauspoka TAKK,“ segir önnur. „Þetta er svo galið að ef ég væri í bæjarstórn þá færi ég með veggjum. Þvílík hörmung!“ segir sú þriðja.
En þó að langflestir séu á einu máli um að stöðin sé lítil prýði og í andstöðu við skipulagið þá koma einstaka íbúar henni til varnar.
„Mér sýnist þetta vera bara til sóma fyrir okkur, við viljum rafvæða bílaflotann okkar og vera svo vistvæn og þá þurfum við líka að geta hlaðið þá þegar við erum að ferðast. Svo losnum við þarna við eitt af þessum grænu svæðum í bænum sem eru hvort sem ekki svo vel hugsað um,“ segir einn maður.
Annar bendir á að stöðin verði ekki þarna að eilífu.
„Þetta er bráðabirgðastaðsetning. Hver veit svo sem hvað það mun vara lengi. Sótt var um undir þeim skilyrðum að mannvirkin vikju þegar framkvæmdir hæfust samkvæmt skipulagi. Það er þess vegna hægt að slá út á morgun klippa á kapalinn og hífa draslið í burtu. Og malbika yfir,“ segir hann.
Þá hefur sveitarfélagið sjálft svarað og bent á að ekki sé hægt að byrja að byggja upp nýja miðbæinn strax.
„Forsenda þess að hægt sé að vinna eftir gildandi skipulagi er tilfærsla Skriðdals- og Breiðdalsvegar ásamt gerð hringtorgs við gatnamót Fagradalsbrautar en framkvæmdin er tilgreind á 2. tímabili (2029-2033) í drögum að samgönguáætlun stjórnvalda. Þar til þeirri framkvæmd er lokið er því ekki hægt að fara í nauðsynlega gatnagerð við nýja götu, Nývang, sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Hefur þetta staðið rekstraraðilum fyrir þrifum þegar kemur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu og erfitt að tímasetja framkvæmdir vegna sífelldra breytinga og óvissu um samgönguáætlun stjórnvalda. Eftir samskipti sveitarfélagsins við lóðarhafa, Festi hf., var ákveðið að heimila uppsetningu á umræddum hleðslustöðvum með þeim fyrirvara að þær gæti þurft að færa til þegar framkvæmdir í samræmi við gildandi deiliskipulag hefjast,“ segir í svari sveitarfélagsins.