Breskur maður virðist hafa lifað af alvarlegt flugslys Air India flugfélagsins í indversku borginni Ahmedabad í morgun. Eins og DV greindi frá var flugvélinni heitið til London Gatwick-flugvallar með 242 einstaklinga um borð þegar einhverskonar bilun átti sér stað skömmu eftir flugtak. Ellefu börn voru um borð í vélinni, þar af tveir nýburar.
Flugvélin, sem komin var í 625 feta hæð, brotlenti stuttu síðar í íbúðahverfi borgarinnar og var talið að allir um borð hefðu farist sem og fólk í kringum það svæði þar sem flugvélin brotlenti.
Daily Mail greinir hins vegar frá því að einn farþegi, breskur karlmaður, sem sat í sæti 11A í vélinni hafi lifað slysið af og birtir myndir þar sem hann virðist ganga af vettvangi með aðeins nokkrar skrámur í andliti. Maðurinn, sem heitir Ramesh Vishwaskumar Bucharvada en á indverskum fréttamiðlum má sjá myndband þar sem hann labbar í átt að sjúkrabíl og fær yfir sig skæðadrífu af spurningum um afdrif annarra farþega.
Talið er að Bucharvada sé sá eini sem lifði slysið af. Á samfélagsmiðlum má sjá hrikalegar myndir af vettvangi deilt, meðal annars lík farþega sem brunnin eru upp til agna.
Á þessari stundu liggur orsök slyssins ekki fyrir en kenningar eru meðal annars uppi um að fugl hafi flogið inn í einn af hreyflum vélarinnar eða þá að einhverskonar sviptivindar hafi haft þessi skelfilegu áhrif.
Vélin var af gerðinni Boeing 787 Dreamliner en um er að ræða fyrsta alvarlega slysið fyrir þá tegund véla.