Herdís var gestur í þættinum Þetta helst á RÚV og var skrifuð frétt upp úr þættinum sem birtist á vef RÚV og þaðan fór hún svo á Facebook þar sem fjörugar umræður fóru fram.
Í þættinum kom fram að Herdís, sem hefur helgað sig öryggismálum allan sinn starfsferil, væri að vinna að nýjum leiðbeiningum um öryggi í umhverfi barna sem ætlaðar eru dagforeldrum. Eru leiðbeiningarnar nú aðgengilegar á vef Heilsuveru en þar er talað um að ung börn eigi ekki að sofa úti í barnavögnum.
Í þættinum fór Herdís nánar yfir þetta og færði góð og gild rök fyrir máli sínu. Benti hún á að um mjög gamla hefð hér á landi væri að ræða frá tíma þar sem ungbarnadauði var mikill á Íslandi og hýbýli manna voru skelfileg. Benti hún á að íslenskur læknir hefði farið til Danmörku til að nema heilsufræði og hann hefði komið með þetta módel heim, að prófa að styrkja lungu barna með því að taka þau með sér út þar sem þau sváfu.
„Þetta þróast yfir í það að þegar að barnavagnarnir koma þá heldur fólk þessu áfram,“ sagði hún.
Herdís sagði að í dag vitum við meira, til dæmis varðandi ungbarnadauða, og það verði að passa vel að dúða börnin ekki um of. Hjá flestum ungbörnum sé hitajöfnunarstöð heilans í lagi en þegar verið er að gefa út leiðbeiningar þurfi að gefa út sömu upplýsingar til allra. Líka til viðkvæmra barna.
„Eftir eins árs aldur er barnið orðið það mikið þroskað og komið með það mikinn styrk að ef það kemst í sjálfheldu í svefninum eða eitthvað slíkt þá getur það komið sér út úr henni, það er komið með það mikla hreyfigetu þannig að hættan minnkar mikið,“ sagði hún og tengdi þetta svo við barnavagnana. Nefndi hún að barnavagninn sem búnaður uppfyllti ekki þessar ströngu kröfur um öryggi vöru í dag að hann sé viðurkenndur staður til að láta barn sofa í.
Benti Herdís á að barnavagninn væri búnaður til að flytja einhvern á milli staða og ekki væru kröfur um að dýnan í vagninum sé öndunarprófuð. „Af því að það á ekki að skilja barnið eftir í þessum búnaði sofandi eitt.“
Hún benti svo á aðra tilhneigingu hér á landi þegar fólk treður barnapíutæki inn í vagninn á meðan hitt tækið er inni þar sem til dæmis er hægt að fylgjast með hljóði. Þetta megi alls ekki gera og ekki þurfi annað en að lesa leiðbeiningar með tækjunum til að sjá það.
„Barnapíutækin eru með miklum rafbylgjum sem geta haft mjög neikvæð áhrif á heila barnsins. Fólk les almennt ekki leiðbeiningar en ef þú lest leiðbeiningar með barnapíutækjum þá stendur að þetta tæki megi einungis nota innandyra og sá hluti tækisins sem er hafður hjá barninu þarf að vera að lágmarki 1,8 metrum frá höfði þess eða meira. Og við höfum verið að stinga þessum börnum inn í vagninn hjá börnunum, sem er gjörsamlega, bara, ekki í lagi vegna þess að það eru aðvörunarleiðbeiningar með þeim sem benda fólki á þessar hættulegu bylgjur.“
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér og fer Herdís yfir þetta í lengra máli en hér er rakið.
Íslendingar eru vanafastir og er skemmst frá því að segja að fylgjendur RÚV á Facebook hafi margir lýst andstöðu sinni við fyrrnefnd ráð. Hér að neðan má sjá nokkrar athugasemdir sem skrifaðar voru undir fréttinni á Facebook í gær.
„Okkar börn sváfu hvergi betur en úti, hvernig sem viðraði.“
„Er ekki hættulegt að anda bara?“
„Það endar með því að það verður skylda að vefja börnin í bóluplast.“
„Les þessa frétt á meðan ég rugga barninu mínu í vagninum sínum að fara út að sofa þar sem hún sefur hvergi betur en úti í vagni – þetta er mesta bullið.“
„Endemis rugl er þetta!“
„Ég er alveg hissa á því að mín 4 börn séu hreinlega á lífi eftir þessa meðferð mína á þeim.“