Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi borgarstjóri, segir Viðskiptaráð sekt um hræsni þegar kemur að umræðunni um óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Hann segir Viðskiptaráð beita sér gegn fólki og fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna.
„Ótrúleg hræsni og tvískinnungur Viðskiptaráðs í húsnæðismálum,“ segir Dagur í færslu á samfélagsmiðlum og vísar í þátt Kastljóss þar sem hann og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs mættust og ræddu um óhagnaðardrifin húsnæðisfélög.
„Í þættinum gagnrýndi ég Viðskiptaráð – reyndar harðlega – fyrir hræsni í málflutningi og framgöngu í málinu. Engin leið er að átta sig á hvers vegna Viðskiptaráð beitir sér af hörku gegn því að fólk og fjölskyldur sem hefur minna á milli handanna eigi (loksins) kost á öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Viðskiptaráð hefur einkum beint spjótum sínum að verkalýðshreyfingunni, ASÍ og BSRB ,sem hefur nýtt stuðning stjórnvalda til að reisa um 1.000 íbúðir á viðráðanlegu verði, einkum í Reykjavík,“ segir Dagur.
Dagur er einn af fjölmörgum sem hafa gagnrýnt Viðskiptaráð harkalega fyrir það útspil að kvarta undan opinberri aðstoð á húsnæðismarkaði. Hefur þessi gjörningur Viðskiptaráðs verið sagður siðlaus og ógeðfelldur.
„Hræsnin felst í því að um leið og Viðskiptaráð gagnrýnir þetta hefur það – í gegnum félag á vegum Háskólans í Reykjavík (HR) þar sem Viðskiptaráð fer með 64% hlut þegið nákvæmlega sama stuðning, sem kallaður er stofnframlög og ráðið er að gagnrýna. Þessi framlög til stúdentaíbúða HR eru samkvæmt sömu lögum og samkvæmt sömu reglum og þau segja nú að séu ólögleg í tilfelli verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Dagur. „Markmið stofnframlaganna í báðum tilvikum er hið sama: að tryggja stúdentum öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, rétt eins og verkalýðshreyfingin er að gera fyrir sína lægst launuðu félagsmenn. Stofnframlögin til stúdentagarða HR sem greiddir hafa verið út eða lofað eru líklega um 5 milljarðar króna enda verkefnið stórt og fjármunirnir eru vandlega geymdir sem eignarhlutur Reykjavíkurborgar og ríkisins í viðkomandi fasteignum, rétt einsog hjá öðrum óhagnaðardrifnum félögum sem nýta sér þetta vel heppnaða kerfi.“
Segir hann það vekja furðu hversu mikið aðgengi Viðskiptaráð hafi að fjölmiðlum og skuli nýta það til að fremja þetta voðaverk, það er að reyna að koma óorði á óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu.
„Væri ekki nær að Viðskiptaráð legðist á árarnar með öðrum óhagnaðardrifnum félögum. Segði sögu hinnar frábæru reynslu Háskólans í Reykjavík – kallaði eftir fleiri íbúðum fyrir tekjulægra fólk, stúdenta, eldri borgara og aðra eftir sömu leið – og hætti þessu rugli?“ spyr hann. „Viðskiptaráð gæti til dæmis byrjað á því að skora á öll bæjarfélögin þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er leiðandi og hefur dregið lappirnar í að byggja um fjölbreyttan húsnæðismarkað að norrænni fyrirmynd.“